Flýtilyklar
Skólaskipið Dröfn
Sjávarútvegsráðuneytið hefur staðið fyrir rekstri skólaskips vor og haust undanfarin ár fyrir nemendur 9. og 10. bekkja grunnskóla landsins og hafa Fiskifélag Íslands, sjávarútvegsráðuneytið og Hafrannsóknastofnunin séð um framkvæmdina. Í ferðunum fá nemendur að kynnast sjávarútveginum og vinnunni um borð í fiskiskipum. Líffræðingur frá Hafrannsóknastofnuninni verður með í för, fræðir þá um hinar ýmsu sjávarlífverur og kynnir starfsemi stofnunarinnar. Skipstjórinn kynnir fyrir nemendum stjórntæki skipsins, veiðarfæri og vinnslulínu. Siglt er úr höfn og trollinu kastað. Þegar búið er að toga fá nemendur að gera að aflanum undir handleiðslu áhafnarinnar og líffræðings.
Vegna fjöldatakmarkana í ferðir komst 10. bekkur eingöngu að að þessu sinni.
Undirsöfn
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni

.jpg)



