VITUND OG VAKNING MEŠAL FORELDRA
mišvikudagur 16.mars 2011 - Lestrar 21
Í kvöld miðvikudaginn 16. mars kl. 20 - 22 heldur foreldrafélag Nesskóla fyrirlestur undir yfirskriftinni VITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA. Fyrirlesari er Helga
Margrét Guðmundsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur.
Hvað þurfa foreldrar að leggja á sig til að bæta uppeldis og menntunarskilyrði barna sinna? Hver er ávinningurinn af foreldrasamstarfi? Hvernig er
hægt að vinna gegn brottfalli úr framhaldsskólum? Hvaða menntun þurfa börn í dag til að geta tekið þátt í
framtíðarþjóðfélaginu?
Þessum spurningum og mörgum fleiri svarar Helga Margrét á fundinum í kvöldi







