Aukaaðalfundur Foreldrafélags Nesskóla
föstudagur 22.maí 2009 - Lestrar 28
Miðvikudaginn 27. maí n.k. kl. 18:00 mun foreldrafélagið halda aukaaðalfund. Meiriháttar breytingar á lögum félagsins eru fyrirhugaðar og
verða tillögur um þær bornar upp á fundinum. Á fundinum verða tveir fulltrúar foreldra í skólaráð Nesskóla kjörnir.
Skólaráð var sett á laggirnar s.l. haust eftir að ný grunnskólalög voru samþykkt. Skólaráð starfar
samkvæmtlögumnr. 91 frá 2008. Í skólaráði eiga
foreldrar tvo fulltrúa, kennarar tvo fulltrúa, nemendur tvo fulltrúa, einn fulltrúi annars starfsfólks skólans og einn fulltrúi er valinn úr
grendarsamfélaginu. Skólarstjóri stýrir ráðinu. Fulltrúar foreldra eru kjörnir til tveggja ára í senn, en þegar kosið er
í fyrsta sinn er annar fulltrúinn kosinn til eins árs. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun
sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélagsins um skólahald. Sjá nánar reglugerð 1157 frá 4.des.2008. Allir foreldrar og forráðamenn nemenda við Nesskóla geta
boðið sig fram til setu í skólaráði. Undanskildir eru þeir sem eru starfsmenn skólans eða kjörnir fulltrúar í
fræðslumálaráði Fjarðabyggðar. Þeir sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til setu í skólaráði eru
vinsamlegast beðnir að hafa samband við formann foreldrafélagsins eða senda inn á netfang foreldrafélagsins foreldrarnesskola@skolar.fjardabyggd.is
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)

.jpg)
.jpg)


