Niðurstöður úr hópavinnu kynntar
Laugardaginn 26. september héldu Fjarðaforeldrar námskeið fyrir stjórnir foreldrafélaga, fulltrúa foreldra í skólaráðum og
bekkjartengla í grunnskólum Fjarðabyggðar. Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla stýrði
námskeiðinu
og meginmarkmið þess var að efla foreldrasamstarf í Fjarðabyggð. Á námskeiðinu var þátttakendum m.a. kynnt ný menntalög,
farið var í starfsemi skólaráða og hlutverk bekkjartengla kynnt. Formenn foreldrafélaganna gerðu grein fyrir starfsemi sinna félaga, tekin var
staðan á starfsemi Fjarðaforeldra og fræðslustjóri Fjarðabyggðar kynnti nýja Fræðslu- og frístundastefnu. Í lok
námskeiðsins var farið í hópavinnu og út úr henni komu margir gagnlegir punktar sem eiga eftir að nýtast vel.