Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Fréttir

VITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA

Fjarðaforeldrar, sem er svæðisráð foreldrafélaga í Fjarðabyggð, standa fyrir fyrirlestrum í grunnskólum Fjarðabyggðar þessa vikuna. Yfirskrift fyrirlestrana er, VITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA sem Helga Margrét Guðmundsdóttir heldur. Fyrirlestrarnir verða haldnir í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar þriðjudagskvöldi 15. mars kl 20:00, í Nesskóla á Norðfirði miðvikudagskvöldið 16. mars kl. 20:00 og í Grunnskóla Eskifjarðar fimmtudagskvöldið 17. mars kl. 20:00. Á námskeiðinu fjallar Helga Margrét um lýðræðislega aðkomu foreldra að skólastarfinu og hvernig foreldrar geta haft áhrif á nám og líðan barna sinna. Helga Margrét mun halda fræðsluerindi á mömmumorgnum/foreldramorgnum, bæði á Eskifirði og Norðfirði. Á Eskifirði þriðjudaginn 15. mars kl. 10:00 að Strandgötu 44 (Herbalifecenter) og á Norðfirði fimmtudaginn 17. mars kl. 10:00 í safnaðarheimilinu. Helga Margrét ræðir um foreldrafærni og móðurhlutverkið og hvernig mæður geta styrkt hver aðra. Það að taka aukna ábyrgð á eigin lífi og líðan og eiga jákvæð og góð samskipti og taka virkan þátt í mótun nærsamfélagsins. Helga Margrét er sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hún starfaði hjá landssamtökunum Heimili og Skóli í mörg ár og hefur látið sig varða uppeldis- og menntunarskilyrði barna. Hún hefur einnig skrifað pistla og greinar um fjölskyldumál en hún er tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt. Jafnframt munu Fjarðaforeldrar halda aðalfund sinn fimmtudaginn 17. mars kl. 17 í Grunnskóla Eskifjarðar. Helga Margrét mun sitja fundinn og Þóroddur Helgason fræðslustjóri mun fjalla um skólanámskrár grunnskólanna í Fjarðabyggð og samanburð sem unninn var á þeim að beiðni Fjarðaforeldra. Einnig mun Þóroddur fjalla um vinnu sem fljótlega fer í gang varðandi aðgerðaráætlun í fræðslu- og frístundamálum 2012-2013.


Mentor

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 605
SAFT

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn