Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Fundargerð 26. september 2009

Námskeið á vegum Fjarðaforeldra fyrir foreldrafélög, skólaráð og bekkjarfulltrúa grunnskóla Fjarðabyggðar. Fyrirlesari er Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla. Námskeiði var haldið laugardaginn 26. September í grunnskóla Reyðarfjarðar.

Á Námskeiðinu voru 28 manns, 12 frá Reyðarfirði, 7 frá Neskaupsstað, 5 frá Eskifirði og 4 frá Stöðvarfirði. Reyðfirðingar sáu um kaffisopann en 10. bekkjar mæður frá Eskifirði buðu upp á súpu og brauð í hádeginu.

Anna Margrét Sigurðardóttir formaður Fjarðaforeldra bauð alla velkomna og kynnti dagskránna.

Hver skóli hélt síðan kynningu á sínu foreldrafélagi. Formaður foreldrafélags grunnskólans á Eskifirði Sigríður Hafdís Pálsdóttir og Kristjana Guðmundsdóttir ritari Fjarðaforeldra og fulltrúi í skólaráði grunnskólans á Eskifirði. Formaður foreldrafélags grunnskólans á Stöðvarfirði Guðný S Sigurjónsdóttir,formaður foreldrafélags grunnskólans á Reyðarfirði Jón Grétar Margeirsson og formaður foreldrafélags grunnskólans í Neskaupstað og jafnframt formaður Fjarðaforeldra Anna Margrét Sigurðardóttir.

Foreldrafélag Nesskóla er eina foreldrafélagið í Fjarðabyggð sem er aðildarfélagi Heimilis og skóla. Allir grunnskólar eru það en foreldrafélög verða að sækja sjálf um. Árgjaldið er 10.000 kr. Hvetjum foreldrafélög til að sækja um.

Helga Margrét fór inn á samheldni í sínum fyrirlestri, að firðirnir standi saman í uppbyggingu góðs foreldrasamvinnu. Félagsleg samheldni er það sem skiptir mestu máli, með góðri samvinnu eykst félagsauður og samfélagið styrkist. Hún kynnti ný grunnskólalög, fór yfir mikilvægi skólaráðs, foreldrafélaga og bekkjartengla.

Fjarðaforeldrar sendu bréf til fræðslunefndar um að fara yfir skólanámkrár grunnskóla Fjarðabyggðar og er það starf hafið.

Umræða myndaðist um mikilvægi Mentors kerfisins en ekki virðast allir vera jafn virkir að nota það. Í Nesskóla var haldið námskeið fyrir foreldra í notkun Mentor kerfisins. Rætt var um foreldrasáttmálann og það gert ljóst að ekki er nauðsynlegt að allir skrifi undir samninginn. Foreldrafélag Nesskóla er með Facebook síðu og einnig Heimili og skóli.

Þóroddur Helgason hélt kynningu á Fræðslu og frístundastefna Fjarðabyggðar. Hún nær yfir grunnskólana, leikskóla, tónlistarskólana, félagsmiðstöðvar, íþróttafélög, vinnuskóla og björgunarsveitirnar. Hægt er að kynna sér stefnuna inn á fjardabyggd.is

Í Fjarðabyggð er hópur sem er að vinna að því að finna eina sameiginlega uppeldisstefnu sem notuð verður í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar. Þessi hópur á að skila inn niðurstöðum sínum núna um áramótin og verður síðan haldið námskeið fyrir starfsfólk skólanna.

Skólafærnisnámskeið fyrir foreldra 1. bekkjar er nú í haust haldið í öllum grunnskólum Fjarðabyggðar og þess má geta að Björg Þorvaldsdóttir, sérkennari í Nesskóla, kom af stað skólafærninámskeiði í þeim skóla fyrir nokkrum árum. Hún hlaut Dugnaðarforksverðlaun Heimilis og skóla 2009 fyrir öflugt starf í þágu foreldra.

Í hverjum bæjarkjarna er komin fulltrúi kennara sem vinnur að því að gera nemendur í 8. 9. og 10. bekk sérfræðinga í sínu safni. Þetta verkefnið gengur út á það að efla þekkingu bæjarins í því safni sem einkennir hvern bæ. T.d. Stríðsársafnið á Reyðarfirði, Steinasafnið á Stöðvarfirði o.s.frv.

Sigríður Hafdís sem er verkefnisstjóri í móttöku nýrra íbúa í Fjarðabyggð,kynnti handbók leik- og grunnskóla í móttöku nýrra nemenda í Fjarðabyggð.

 

Fundargerð skráð 27. September 2009.

Kristjana Guðmundsdóttir.

 

Mentor

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 598
SAFT

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn