Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Starfsreglur Fjarðaforeldra

Starfsreglur Fjarðaforeldra

Svæðisráðið er samstarfsvettvangur foreldrafélaga í Fjarðabyggð og málsvari foreldra grunnskólanemenda í sveitarfélaginu. Svæðisráðið vinnur að sameiginlegum málefnum nemenda í grunnskólum Fjarðabyggðar og foreldrum þeirra, veitir fræðslunefnd umsagnir um ýmis mál er varða starfsemi grunnskólanna og er bæjaryfirvöldum til aðstoðar og ráðuneytis um skóla- og fjölskyldumál. Tilgangur svæðisráðsins er að styrkja rödd foreldra sem hagsmunahóps í sveitarfélaginu og sameina krafta þeirra til góðra verka í skólamálum, meðal annars með því að auka samskipti milli foreldra og grunnskóla sveitarfélagsins og með því að velja fastan fulltrúa foreldra úr svæðisráðinu sem áheyrnarfulltrúa á fundum fræðslunefndar. 

 Starfsreglur fyrir svæðisráðið: 


  1. Fjarðaforeldrar - svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólum Fjarðabyggðar er samstarfsvettvangur foreldrafélaga og málsvari foreldra grunnskólanemenda í sveitarfélaginu. Svæðisráðið er tengiliður við landssamtök foreldra og tilnefnir fulltrúa og varamann í fulltrúaráð Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra.  
  2. Svæðisráðið er skipað öðrum fulltrúa foreldra í skólaráði og einum fulltrúa foreldrafélags hvers grunnskóla í Fjarðabyggð. Æskilegt er að formenn foreldrafélaga séu fulltrúar í ráðinu. 
  3. Svæðisráðið fundar þrisvar sinnum yfir skólaárið og oftar ef þurfa þykir. Fundarstaðir og fastir fundartímar skulu ákveðnir á fyrsta fundi skólaársins. Aðalfundur svæðisráðsins skal haldinn að hausti. 
  4. Svæðisráðið velur úr sínum hópi til minnst tveggja ára í senn formann, varaformann, ritara, áheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd og fulltrúa og varamann í fulltrúaráð Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra. Við kjör í trúnaðarstöður í svæðisráðinu skal þess gætt eins og kostur er að velja fulltrúa foreldra úr sem flestum af skólunum fimm og að hvert trúnaðarembætti fyrir sig færist með einhverjum hætti á milli skólanna.Til að tryggja eðlilega og jafna endurnýjun fulltrúa í svæðisráðinu skulu fulltrúar hvers skóla fyrir sig kosnir hvor á sínu árinu þannig að því sem næst helmingur fulltrúa í svæðisráðinu endurnýist á hverju ári. 
  5. Formaður svæðisráðsins sér um að boða til funda með dagskrá, heldur til haga gögnum ráðsins og kemur þeim til næsta formanns þegar hann lætur af embætti. Formaður er varamaður fyrir áheyrnarfulltrúa foreldra í fræðslunefnd. Áheyrnarfulltrúi situr fundi fræðslunefndar með málfrelsi og tillögurétt sbr. 4. málsgrein 6. greinar grunnskólalaga og talar þar máli foreldra. Hann fylgir einnig eftir erindum frá svæðisráðinu, skólaráðum og stjórnum foreldrafélaga grunnskólanna og miðlar upplýsingum til fulltrúa í svæðisráði um þau mál sem tekin eru fyrir í fræðslunefnd. Ritari sér um að rita fundargerðir á fundum ráðsins og senda þær til fundarmanna sem og félagsmálastjóra, fræðslustjóra og formanns skólanefndar. Hann sér til þess að þær birtist á upplýsingavef skólanna. Fulltrúi og varafulltrúi í fulltrúaráði Heimilis og skóla starfa samkvæmt reglum samtakanna þar um.  
  6. Svæðisráð, í samvinnu við foreldrafélög grunnskólanna, stendur fyrir fræðslufundum um skóla- og uppeldismál í öllum skólahverfum Fjarðabyggðar að minnsta kosti einu sinni á skólaárinu. Fundirnir skulu vera opnir öllum. 
  7.  


    Um Fjarðaforeldra: 


    Fjarðaforeldrar er nafn á svæðisráði foreldra í grunnskólum Fjarðabyggðar. Fjarðaforeldrar er skipað 10 fulltrúum foreldra í sveitarfélaginu, það er öðrum fulltrúa skólaráðs og einum fulltrúa foreldrafélags hvers grunnskóla í Fjarðabyggð. Tilgangur Fjarðaforeldra er að styrkja rödd foreldra sem hagsmunahóps í sveitarfélaginu og sameina krafta þeirra til góðra verka í skólamálum, meðal annars með því að auka samskipti milli foreldra og grunnskóla sveitarfélagsins og með því að velja fastan fulltrúa foreldra úr svæðisráðinu sem áheyrnarfulltrúa á fundum fræðslunefndar. Þannig má auka upplýsingaflæði frá foreldrum til skólayfirvalda og öfugt. Svæðisráðið er jafnframt tengiliður foreldra í Fjarðabyggð við Heimili og skóla, landssamtök foreldra, og tilnefnir fulltrúa í fulltrúaráð samtakanna. Formlegur stofnfundur svæðisráðsins verður haldinn í Grunnskóla Reyðarfjarðar fimmtudaginn 28. maí 2009, kl. 18:00.
Mentor

Teljari

Í dag: 3
Samtals: 396
SAFT

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn