Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Stofnfundur 28. maí 2009

Stofnfundur Fjarðaforeldra haldinn í grunnskóla Reyðarfjarðar 28. maí 2009 kl. 18:00

Á stofnfundinn eru eftirfarandi aðilar mættir:

  • Sigríður Herdís Pálsdóttir formaður foreldrafélags Gr.Eskifjarðar
  • Anna Margrét Sigurðardóttir formaður foreldrafélags Nesskóla
  • Sigríður Margrét Guðjónsdóttir fulltrúi í foreldrafélagi Nesskóla
  • Guðrún Ármannsdóttir fulltrúi foreldra frá Gr.Stöðvarfjarðar
  • Solveig Friðriksdóttir fulltrúi foreldra í skólaráði Gr. Stöðvarfjarðar
  • Elín Jónsdóttir fulltrúi foreldra í skólaráði Gr. Reyðarfjarðar
  • Jón Grétar Margeirsson formaður foreldrafélags Gr. Reyðarfjarðar
  • Þóroddur Helgason fræðslustjóri sem stýrði fundinum.

Þóroddur Helgason les starfsreglur Fjarðaforeldra. Orðið gefið laust og starfsreglur ræddar og samþykktar.

Rætt um að standa fyrir samkeppni á næsta skólaári, um merki Fjarðaforeldra, á meðal grunnskólabarna í Fjarðabyggð. Veita verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar.

Rætt um að setja upp heimasíðu fyrir Fjarðaforeldra og fá að hýsa hana hjá Nesskóla. Anna Margrét tekur að sér að athuga með þetta og ræða við Marías skólastjóra.

Ákveðið að fundargerð sé rituð og send á alla fulltrúa Fjarðaforeldra. Ef engar athugasemdir berast innan 3ja daga er fundargerðin birt á heimasíðunni.

Kosið í stjórn.

  • Anna Margrét Sigurðardóttir formaður 
  • Berglind Ósk Agnarsdóttir varaformaður 
  • Kristjana Guðmundsdóttir ritari 
  • Solveig Friðriksdóttir gjaldkeri 
  • Elín Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi í fræðslunefnd 
  • Sigríður Herdís Pálsdóttir 
  • Sigríður Margrét Guðjónsdóttir 
  • Guðný Sigurjónsdóttir 
  • Jón Grétar Margeirsson 
  • Björgvin Már Hansson 

Rætt um að fá fulltrúa Heimilis og skóla til að halda námskeið fyrir fulltrúa í foreldrafélögum og skólaráðum í Fjarðabyggð í september. Þóroddur tekur að sér að athuga hvort Fjarðabyggð fjármagni námskeiðshaldið og kostnað vegan samkeppni um merki. Einnig að athuga með árlegann rekstrarkostnað vegna Fjarðaforeldra. Eins og vegna áheyrnarfulltrúa foreldra í fræðslunefnd, ferðakostnað fulltrúa og kostnað af einum fundi eða námskeiði árlega.

Fundi slitið kl 20:10. Fundargerð ritar Anna Margrét Sigurðardóttir

  • Sigríður Herdís Pálsdóttir sign.
  • Anna Margrét Sigurðardóttir sign
  • Sigríður Margrét Guðjónsdóttir sign
  • Guðrún Ármannsdóttir sign
  • Sólveig Friðriksdóttir sign
  • Elín Jónsdóttir sign
  • Jón Grétar Margeirsson sign
  • Þóroddur Helgason sign
Mentor

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 598
SAFT

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn