Bjartsýnisverðlaun Stulla eru verðlaun sem veitt eru í minningu um Sturlaug Ásgeirsson,
nemanda í Nesskóla sem lést 25. apríl 2001 aðeins 17 ára gamall. Stulli var haldinn hrörnunarsjúkdómi og þrátt fyrir sín
erfiðu veikindi var Stulli alltaf brosandi og þótti bjartsýni hans, jákvæðni og gott hugarfar vera til eftirbreytni fyrir aðra nemendur og starfsmenn
skólans. Það voru hjónin Eva Sýbilla Guðmundsdóttir og Grímur Magnússon sem áttu frumkvæðið að þessum
verðlaunum sem veitt eru nemenda Nesskóla á hverju ári. Með Stullaverðlaununum viljum við halda minningu Sturlaugs Ásgeirssonar á lofti og tileinka
okkur það hugarfar og þann kjark sem hann hafði yfir að búa. Stafsmenn Nesskóla tilnefna nemanda til verðlaunanna sem hefur þá kosti til að
bera að vera bjartsýnn, einstaklega geðgóður, glaðvær og reynist skólasystkinum sínum hjálpsamur og góður félagi. Nú
hafa 8 nemendur við Nesskóla hlotið Stullaverðlaunin. 8. maí s.l. hlaut Rannveig Júlía Sigurpálsdóttir, nemandi í 10. Bekk,
Stullaverðlaunin. Hér er listi yfir þá nemendur sem hlotið hafa Bjartsýnisverðlaun Stulla.
2002: Ingi Steinn Freysteinsson
2003: Agnes Heiða Þorsteinsdóttir
2004: Hulda Rún Rúnarsdóttir
2005: Sæunn Skúladóttir
2006: Jóhann Keith Hearn
2007: Kristín Hrönn Halldórsdóttir
2008: Helena Kristín Gunnarsdóttir
2009: Rannveig Júlía Sigurpálsdóttir
Ef smellt er á ártalið hér fyrir ofan birtist ávarp Gríms Magnússonar kennara sem hann flutti við afhendingu verðlaunanna það
árið.









