Foreldrasáttmálinn hefur verið lagður fyrir í fjölmörgum skólum um allt land og í þeim samfélögum þar sem góð
samstaða hefur náðst um samninginn er fólk sammála um jákvæð áhrif hans á unglingamenninguna sem og samstöðu foreldra um að
virða útivistarreglurnar svo fátt eitt sé nefnt. Samningurinn er annars vegar fyrir 1.-6. bekk og hins vegar fyrir 7.-10. bekk. Í þessu forvarnarverkefni er m.a.
bent á að foreldrar sem senda barn útsofið í skólann eru að leggja sitt af mörkum til að barnið nái æskilegum
námsárangri. Einnig tekur samningurinn til eineltis, samábyrgðar og reglna um notkun á tækni eins og tölvuleikjum og aðgengi að Netinu og
farsímum en í þeim málum hafa foreldrar ekki fyrirmynd og því mikilvægt að geta haft samráð um slíkt.
Flýtilyklar
Á nćstunni
Engir viđburđir á nćstunni

.jpg)









