Aldrei verður nógu mikil áhersla lögð á mikilvægi samstarfs heimila og skóla. Rannsóknir sýna að slíkt samstarf hafi alltaf
jákvæð áhrif á skólastarf. Við höfum engu að tapa en allt að vinna. Þar má nefna:
Betri líðan barna í skólanum og jákvæðari viðhorf þeirra.
- Aukinn áhugi og betri námsárangur barnanna
- Aukið sjálfstraust og betri sjálfsmynd nemenda
- Betri ástundun, betri heimavinnuskil, minni fjarvistir og brottfall
- Jákvæðara viðhorf foreldra og nemenda til skólans
- Jákvæðara andrúmsloft í bekknum
- Forvarnargildi- samstaða gegn hópþrýsingi
Þátttaka í foreldrasamstarfi er kjörin leið fyrir foreldra til að kynnast betur umhverfi barna sinna og fá tækifæri til að móta
það og bæta.
Foreldrasamstarf tryggir gott upplýsingaflæði og samstarf um framfarir barnsins, vinnu þess og vandamál. Foreldrar hitta kennarana og geta skipst á
upplýsingum um nám og líðan barnsins. Með samstarfi finnur skólinn að foreldunum er umhugað um velferð og menntun barnsins og barnið finnur að
foreldrarnir hafa áhuga á starfi þess.
Markmið skóla með foreldrasamstarfi er að upplýsa foreldra um framfarir barnsins og heyra hvort kröfur þeirra séu uppfylltar. Með samstarfi
fær skólinn vitneskju um barnið frá sjónarhóli foreldranna. Hann getur útskýrt ákvarðanir skólans sem snerta einstaka nemendur og
hjálpað foreldrum að finna leiðir til að aðstoða börn sín.



.jpg)

.jpg)




