Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Nýjustu fréttir

Gott framtak hjá 7. bekk

Eitt af því sem gerðist í fárviðrinu sem gekk yfir á aðfangadagskvöld var að fatagámur Rauða krossins fauk í sjóinn og fötin sem voru komin í gáminn flutu upp í fjöru. Í gær ákvað 7. bekkur að nýta góða veðrið, ganga um fjörurnar, týna upp föt og læra í leiðinni hvað fötin heita á dönsku. Alls týndu krakkarnir upp föt í fjóra svarta poka og nú er fjaran fatalaus. Flott framtak hjá þeim!


Myndir frá jólaballi

Nemendur og starfsfólk skólans héldu sitt árlega jólaball í morgun. Jólasveinar mættu á svæðið og vöktu mikla lukku. Teknar voru myndir á ballinu og á bekkjarjólum nemenda, þessar myndir má sjá hér. Við í skólanum óskum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þökkum fyrir samstarfið á árinu. Hlökkum til að sjá alla á nýju ári, en skóli hefst aftur skv. stundaskrá 4. janúar.

Lestrarátak


Mánudaginn 19. desember voru veittar viðurkenningar fyrir heimalestrarátakið, sem var dagana 14. – 27. nóvember. Með því að smella á lesa meira, má sjá hverjir fengu viðurkenningar að þessu sinni. Verum dugleg að lesa um jólin!

Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn