Skemmtileg heinsókn í 1. bekk
miðvikudagur 01.febrúar 2012 - Lestrar 4
1.GR fékk skemmtilega heimsókn í dag. Níels lögreglumaður kom í heimsókn til að afhenda einum heppnum nemanda verðlaun fyrir
umferðargetraun sem þau tóku þátt í.
Hafsteinn Jökull Þorgeirsson var sá heppni og fékk hann bókina um Jón Odd og Jón Bjarna í verðlaun.
1. - 4. bekkur tóku þátt og voru dregnir út vinningshafar í hverjum bekk sem fengu bækur afhentar af lögreglunni. Þessi bók var sú síðasta sem afhent var, en Foreldrafélag skólans hefur gefið bækurnar undanfarin ár. Níels fór einnig yfir umferðarreglur og fleira sem nemendur höfðu bæði gagn og gaman af. Áhugaverðast fannst nemendum þó að skoða allt flotta „dótið“ sem hann var með á vestinu sínu. Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá hér. Takk fyrir okkur Níels.