Flýtilyklar
Frá Mjóafirði, nóv. - des. 2009
Margt hefur verið að gerast í skólanum í Mjóafirði upp á síðkastið.
Eins og á fleiri stöðum í Fjarðabyggð var kveikt á jólatréinu við Sólbrekku laugardaginn 28. nóvember. Þar mættu allir sem mögulega gátu og meira að segja sá skyrgámur sér fært að mæta, öllum til óvæntrar ánægju. Núna í desember fengu nemendur afnot af Fræðakistlinum sem er að flakka um skóla fjórðungsins. Eins og nafnið gefur til kynna þá er þessi kistill mjög fræðandi og nemendur skemmtu sér konunglega við að rannsaka innihald hans. Á aðventunni hefur skapast sú hefð að nemendur, foreldrar, kennarar og aðrir áhugasamir um aðventukransa safnast saman í skólanum og útbúa kransa eins og hver og einn vill. 3. desember var skólinn svo gerður jólalegur og skólastofan skreytt. Myndir má sjá hér.
Undirsöfn
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni









