Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Nýjustu fréttir

Krufning í náttúrufræði


Í síðustu viku krufði 6. bekkur fisk í náttúrufræði. Nemendur voru mjög áhugasamir og stóðu sig frábærlega. Miklir vísindamenn á ferð. Endilega kíkið á myndirnar þær lýsa vel stemmingunni sem skapaðist. Myndasafnið má sjá hér.


Ragnar Ingi fékk bjartsýnisverðlaun Stulla


Í morgun voru Bjartsýnisverðlaun Stulla afhent í 11. skiptið á sal skólans. Verðlaunin komu að þessu sinni í hlut Ragnars Inga Axelssonar nemanda í 10. SJG.

Við starfsmenn Nesskóla óskum honum innilega  til hamingju með viðurkenninguna og velfarnaðar í framtíðinni. Meðfylgjandi má sjá mynd af verðlaunahafanum og foreldrum hans. Með því að smella á "Lesa meira" má lesa nánar um verðlaunin.

Lesa meira

Skólaþríþraut FRÍ


Um síðustu helgi fóru fram úrslit í skólaþríþraut FRÍ í Reykjavík. Keppt var í 60 metra hlaupi, boðhlaupi, kúluvarpi og hástökki. Þrír nemendur frá Nesskóla kepptu á mótinu og stóðu sig allir vel. Þetta voru þau Heiða Elísabet Gunnarsdóttir, Patrekur Darri Ólason og Atli Fannar Pétursson. Hér til hliðar má sjá mynd af keppendum.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn