Eldvarnarvika
þriðjudagur 22.nóvember 2011 - Lestrar 8
Í morgun fengum við góða heimsókn í skólann, en þá komu fulttrúar frá Slökkviliði Fjarðabyggðar í
tengslum við eldvarnarvikuna sem stendur núna. Nemendur 3. bekkjar voru heimsóttir þar sem krakkarnir voru frædd um eldvarnir sem alltaf er gott að rifja upp,
sérstaklega núna fyrir jólin. Í lok heimsóknarinnar fengum nemendur að skoða slökkvibifreið og sjúkrabíli sem alltaf er
vinsælt. Á myndinni hér til hliðar má sjá Eirík Karl Bergsson slökkviliðsmann í hópi ánægðra 3. bekkinga og
kennara þeirra, Helgu Óskar Snædal.










