Göngum í skólann
fimmtudagur 22.september 2011 - Lestrar 6
Þann 7. september sl. hófst átakið Göngum í skólann. Í ár tökum við í Nesskóla þátt í verkefninu. Okkar aðkoma að því verkefni verður með ýmsum hætti, við munum hafa okkar „Göngum í skólann“ viku 26. – 30. september nk., lögreglan kemur í heimsókn með umferðarfræðslu, hjólaskoðun o.fl. Einnig munu vinabekkirnir ganga saman fimmtudaginn 29. september Nesskólahringinn sem er upp Nesgötuna, inn Mýrargötu og Sverristún og inn að gervigrasvellinum.
Við hvetjum alla til að taka þátt í átakinu með okkur og ganga, eða hjóla, í skólann í næstu viku. Með því viljum við leggja áherslu á heilbrigða lífshætti og í leiðinni rifja upp umferðarreglurnar.
.jpg)
.jpg)


.jpg)




