Lestrarįtak
Mánudaginn 19. desember voru veittar viðurkenningar fyrir heimalestrarátakið, sem var dagana 14. – 27. nóvember. Með því að smella á
lesa meira, má sjá hverjir fengu viðurkenningar að þessu sinni. Verum dugleg að lesa um jólin!
Flestar bækur las Birna Marín Viðarsdóttir í 5.MJO, samtals 20 bækur.
Í öðru sæti voru Íris Björg Valdimarsdóttir og Jóhanna Lind Andradóttir í 5.MJO með 19 bækur.
Í þriðja sæti var Inga Sóley Viðarsdóttir í 2.SRA með 16 bækur.
Flestar blaðsíður las Birna Marín Viðarsdóttir í 5.MJO, samtals 2543. Aldrei hafa áður verið lesnar fleiri blaðsíður af nemanda í heimalestrarátaki.
Til hamingju Birna Marín!
Fast á hæla Birnu kom Íris Björg Valdimarsdóttir, 5. MJO, með 2253 blaðsíður. Í þriðja sæti var Ýr Gunnarsdóttir í 5 MJO með 1488 blaðsíður.
Eins og endranær stóðu nemendur og foreldrar sig vel. Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með því síðustu árin hve foreldrar hafa verið duglegir og samviskusamir að vinna með skólanum í þessum átökum. Framfarir hjá nemendum hafa að sama skapi verið miklar og mikill metnaður að ná markmiðunum sem sett hafa verið. Lestrarfærni er auk þess undirstaða menntunar en stuðlar jafnframt að auknum orðaforða og betra valdi á tungumálinu. Betri orðaforði eykur svo líkurnar á því að hafa gaman af því að lesa.





