Göngum í skólann - teiknisamkeppni
föstudagur 07.október 2011 - Lestrar 10
Nú er Göngum í skólann vikunni lokið og heppnaðist hún vel. Skólinn var að taka þátt í fyrsta skipti og margt skemmtilegt
gert. M.a. var haldin teiknisamkeppni fyrir nemendur á yngsta stigi, þar sem þau áttu að teikna mynd sem lýsti verkefninu. Margar góðar myndir komu til
greina og var valið mjög erfitt. En eftir mikla vinnu dómnefndar var ljóst að ein mynd stóð upp úr. Það var mynd eftir Ester Rún
Jónsdóttur. Á þeirri mynd má sjá stúlku sem er að bíða eftir að komast yfir gangbraut, glöð og kát á leið
í skólann. Hún er að hlusta hvort hún heyri í bíl, horfir og athugar, alveg eins og á að gera þegar gengið er yfir gangbraut.
Sjá má myndina stóra með því að smella á hana hér til hliðar. Í verðlaun hlaut Ester hjólahjálm, til
hamingju!

.jpg)


.jpg)
.jpg)


