Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Fréttir

Gott framtak hjá 7. bekk

Eitt af því sem gerðist í fárviðrinu sem gekk yfir á aðfangadagskvöld var að fatagámur Rauða krossins fauk í sjóinn og fötin sem voru komin í gáminn flutu upp í fjöru. Í gær ákvað 7. bekkur að nýta góða veðrið, ganga um fjörurnar, týna upp föt og læra í leiðinni hvað fötin heita á dönsku. Alls týndu krakkarnir upp föt í fjóra svarta poka og nú er fjaran fatalaus. Flott framtak hjá þeim!



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn