Karnivaldagur
föstudagur 27.maí 2011 - Lestrar 23
Þriðjudaginn nk., 31.5, er síðasti dagur skólaársins. Þá verður farið í karnivalgöngu um bæinn, þar sem vinabekkirnir
ganga saman í sömu litum. Allir mæta kl. 8 í skólann þar sem hóparnir fá andlitsmálningu og söngvar verða æfðir. Gangan
fer af stað kl. 9:30 og sungið verður á Nesbakkaplani, við Fjórðungssjúkrahúsið, leikskólann og bílastæðið við
Samkaup. Dagurinn endar á því að grillaðar verða pylsur fyrir alla. Skóla lýkur kl. 12. Skóladagheimilið opnar kl. 12 þennan dag.








