Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Fréttir

Mamma Mia

Núna standa yfir æfingar hjá 9. bekk skólans á Mamma Mia, söngleik sem byggður er á hinni vinsælu mynd þar sem lög hljómsveitarinnar Abba eru notuð. Hér er söngur, leikur og lifandi tónlist. Undanfarin ár hefur skólinn sett upp söngleiki í tengslum við fjáröflun 9. bekkjar skólans til vorferðalags. Árið 2009 var Abbababb eftir Dr. Gunna sett upp og í fyrra voru Óvitar Guðrúnar Helgadóttur settir upp. Frumsýnt verður fimmtudaginn 1. des kl. 20:00, önnur sýning verður föstudaginn 2. des kl. 15:00 og þriðja og síðasta sýning verður sunnudaginn 4. des kl. 16:00.
Sýningin á föstudeginum er skólasýning þar sem öllum grunnskólanemendum í Fjarðabyggð er boðið að koma og sjá söngleikinn. Kostnaður allra er sá sami, óháð búsetu, þ.e. kr. 1.500.- þar sem Tanni travel ætlar að styrkja okkur rausnarlega svo allir sitji við sama borð. Leikstjóri sýningarinnar er Guðrún Smáradóttir.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn