Nįttśrufręšikennsla
mįnudagur 12.september 2011 - Lestrar 5
Undanfarna daga hafa nemendur í 5., 6., 8. og 9. bekk verið á faraldsfæti og notið þess að vera úti í náttúrufræði. 6.SHÁ fór í fjöruferð í yndislegu veðri og var margt brallað. 6.KSS fór líka í fjöruferð en var ekki jafn heppinn með veður. Engu að síður var mjög gaman og m.a. kíkti selafjölskylda á okkur. 5. bekkur hefur síðustu tvo mánudaga farið upp í skógrækt að veiða smádýr og greina þau. Mörg smádýr rötuðu í gildrurnar en eftir greiningu var þeim sleppt. 8. og 9. bekkur fór upp í skógrækt að safna sýnum fyrir náttúrufræðinámið í vetur. Unglingarnir í skóginum skemmtu sér mjög vel og söfnuðu mörgum og góðum sýnum. Myndir frá ferðunum má sjá hér.


.jpg)




