Stjörnutjald
föstudagur 30.september 2011 - Lestrar 8
Þriðjudaginn 27. september fengum við í skólanum góðan gest. Það var Snævarr Guðmundsson sem kom og sýndi nemendum undraveröld
alheimsins í Stjörnutjaldinu. Þetta er í annað sinn sem Snævarr kemur og eins og síðast var mikil ánægja með heimsóknina. Nokkrar
myndir voru teknar og þær má sjá hér. Samvinnufélag Útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN)
veitti styrk til heimsóknarinnar og færum við þeim bestu þakkir fyrir. Einnig viljum við þakka Brynju námsráðgjafa skólans fyrir, en
hún hafði yfirumsjón með verkefninu.


.jpg)



