Vorsýning í Nesskóla
fimmtudagur 12.maí 2011 - Lestrar 16
Föstudaginn 13.maí verður vorsýning í Nesskóla.
Sýningin hefst kl. 16:00 og lýkur kl. 18:00.
Sýnd verða verk nemenda sem þau hafa unnið yfir veturinn.
Í boði verða einnig skemmtiatriði, svo sem danssýning, víkingasýning og söngur. Einnig verður boðið upp á gómsætar Tröllanessmákökur og Sjávarréttarsúpu Sigga Nobb.
Vonumst við til að sjá sem flesta






