Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Hjúkrunarfræðingur

Í Nesskóla er Hrönn Sigurðardóttir starfandi hjúkrunarfræðingur.

           

Viðvera er á mánudögum frá kl: 8:00 – 15:00

           

Netfang og símanúmer: hronnsi@simnet.is Sími 897-5687

 

            Tilgangur

                        Tilgangur skólaheilsugæslu er að fylgjast með heilsu, þroska og líðan barna á grunnskólaaldri. Hlutverk hennar er að stuðla að líkamlegu, andlegu og félagslegu heilbrigði skólabarna, ásamt því að greina og sinna heilbrigðisvandamálum sem hafa áhrif á velferða nemenda og námsgetu. Skólaheilsugæslan miðar að því að auka vitund og ábyrgð barna og unglinga að því hvernig þau geti bætt eigið heilbrigði og líðan sem og annarra. Til að þetta sé mögulegt þarf að koma til samstarf allra í skólasamfélaginu, þ.e. nemenda, kennara, foreldra og eftir þörfum aðilum utan skólans.

Hjúkrunarfræðingur situr í nemendaverndarráði skólans.

 

            Reglulegar heilsufarsathuganir

                       

Sjónpróf í 4., 7. og 9. bekk

                        Hæðar og þyngdarmælingar í 4. og 9. bekk

                        Litarskyn hjá nemedum í 7. bekk

                        Heyrnarmæling í 1. og 9. bekk

 

Nemendur í öðrum bekkjum eru skoðaðir ef ástæða þykir til

 

            Ónæmisaðgerðir

 

                        Bólsuetning gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt í 7. bekk

                        Bólusetning gegn mænusótt, stífkrampa og barnaveiki í 9. bekk

 

            Lyfjagjafir í skólanum

           

                        Þurfi barn að taka lyf á skólatíma eru þau geymd hjá ritara. Mikilvægt er að lyfin séu vel merkt og í þar til gerðum lyfjaboxum. Foreldrar þurfa að koma lyfjunum sjálfir í skólann en ekki senda barnið eða eldri systkini með það.

 

            Heilbrigðisfræðsla

                       

                        Skipulögð heilbrigðisfræðsla og hvatning til heilbrigðra lífshátta er sinnt eins og unnt er í samráði við kennara í hverjum bekk. Byggt er á hugmyndafræðinni 6-Hheilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Áherslur fræðslunnar eru Hollusta – Hvíld – Hreyfing – Hreinlæti – Hamingja – Hugrekki og kynheilbrigði. Eftir fræðslu fær barnið fréttabréf með sér heim. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börning um það sem þau lærðu og hvernig þau geti nýtt sér það í daglegu lífi.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn