Námsráðgjöf 2010 - 2011
Bæklingur námráðgjafa ( bæklingurinn er á pdf formi og opnast með Adobe Acrobat reader )Náms- og starfsráðgjafi Nesskóla er Brynja Garðarsdóttir, brynja@skolar.fjardabyggd.is.
Hlutverk námsráðgjafa
- Að standa vörð um velferð nemenda.
- Allt sem snertir velferð nemenda og stuðlar að vellíðan þeirra bæði í skólanum og utan hans tengist starfi námsráðgjafans.
- Námsráðgjafi er málsvari nemenda og trúnaðarmaður og aðstoðar þá við að leita lausna í sínum málum.
Þjónusta námsráðgjafans stendur öllum nemendum skólans og foreldrum þeirra til boða, hvort sem erindið er stórt eða
smátt.
Viðtalstímar náms- og starfráðgjafa
Náms- og starfráðgjafi Nesskóla býður upp á opna viðtalstíma þ.e. nemendur, foreldrar og kennarar þurfa ekki að panta tíma
fyrirfram. Opnir viðtalstímar eru sem hér segir: Alla virka daga frá 9 - 11 og 13 - 15.
Skrifstofa námsráðgjafans er á efstu hæð skólans rétt hjá unglingaganginum. Einnig er hægt að ná í námsráðgjafa í síma 4771108 eða 4771124
Af hverju námsráðgjöf
Af hverju ættir þú að leita til námsráðgjafa?
-
Þú veist ekki hvernig þú átt að skipuleggja heimanámið
-
Þér finnst þú muna illa það sem þú lest
-
Þú þarft að skipuleggja tíma þinn betur
-
Þú hefur dregist aftur úr náminu
-
Þér gengur ekki nógu vel í einhverri námsgrein
-
Þú veist ekki hvaða námsbraut í framhaldsskóla þú átt að velja
-
Þér leiðist í skólanum
-
Þig langar ekki til að fara í skólann
-
Þú ,,nennir” ekki að læra heima
-
Þér gengur illa að fylgjast með í tímum
-
Þú ert hrædd(ur) um að falla
-
Þér gengur illa að fara á fætur á morgnana
-
Þú átt í erfiðleikum með einkalífið
-
Þér líður mjög illa í prófum
-
Þú ert kvíðin(n) eða líður illa
-
Þú hefur áhyggjur af vini þínum – hvert átt þú að leita?
-
Þig langar að spjalla um skólalífið
Og ýmislegt fleira





