Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Skólaskrifstofa Austurlands

Skólaskrifstofa Austurlands

Skólaskrifstofa Austurlands er byggðasamlag 8 sveitarfélaga á Austurlandi, frá Vopnafirði í norðri til Djúpavogs í suðri. Skrifstofan hefur aðsetur í Hermes, Búðareyri 4 á Reyðarfirði. Starfsemin er skv. samningi sem byggður er á grunnskólalögum og reglugerðum um sérfræðiþjónustu. Skólaskrifstofa Austurlands er fyrst og fremst þjónustustofnun fyrir eigendur sína, þ.e. sveitarfélögin og hefur fyrir þeirra hönd yfirumsjón með ýmsum þáttum í starfi grunnskólanna. Skrifstofan hefur einnig skyldur gagnvart öðrum sem tengjast starfi grunnskólanna. Einnig veitir skrifstofan leikskólum sálfræðiþjónustu og ráðgjöf. Helstu verkefni eru greining og ráðgjöf á sviði kennsluráðgjafar, sálfræðiþjónustu og öðru sem snýr að skólahaldi. Einnig má nefna verkefni á sviði endurmenntunar og fræðslu, þátttöku í nýbreytni- og þróunarverkefnum, útlán á kennslugögnum o.fl.

Starfsmenn skrifstofunnar eru:

  • Aðalheiður Jónsdóttir, sálfræðingur
  • Ásta María Hjaltadóttir, kennsluráðgjafi
  • Halldóra Baldursdóttir, talmeinafræðingur
  • Jarþrúður Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi
  • Kristín Óskarsdóttir, skrifstofumaður
  • Magdalena Gunnarsdóttir, sálfræðingur
  • María Huld Ingólfsdóttir, sálfræðingur
  • Sigurbjörn Marinósson, forstöðumaður

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn