Skólaskrifstofa Austurlands
Skólaskrifstofa Austurlands er byggðasamlag 8 sveitarfélaga á Austurlandi, frá Vopnafirði í norðri til Djúpavogs í suðri.
Skrifstofan hefur aðsetur í Hermes, Búðareyri 4 á Reyðarfirði. Starfsemin er skv. samningi sem byggður er á grunnskólalögum og
reglugerðum um sérfræðiþjónustu. Skólaskrifstofa Austurlands er fyrst og fremst þjónustustofnun fyrir eigendur sína, þ.e.
sveitarfélögin og hefur fyrir þeirra hönd yfirumsjón með ýmsum þáttum í starfi grunnskólanna. Skrifstofan hefur einnig skyldur
gagnvart öðrum sem tengjast starfi grunnskólanna. Einnig veitir skrifstofan leikskólum sálfræðiþjónustu og ráðgjöf. Helstu
verkefni eru greining og ráðgjöf á sviði kennsluráðgjafar, sálfræðiþjónustu og öðru sem snýr að
skólahaldi. Einnig má nefna verkefni á sviði endurmenntunar og fræðslu, þátttöku í nýbreytni- og þróunarverkefnum,
útlán á kennslugögnum o.fl.
Starfsmenn skrifstofunnar eru:
- Aðalheiður Jónsdóttir, sálfræðingur
- Ásta María Hjaltadóttir, kennsluráðgjafi
- Halldóra Baldursdóttir, talmeinafræðingur
- Jarþrúður Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi
- Kristín Óskarsdóttir, skrifstofumaður
- Magdalena Gunnarsdóttir, sálfræðingur
- María Huld Ingólfsdóttir, sálfræðingur
- Sigurbjörn Marinósson, forstöðumaður



.jpg)



