Skólareglur Nesskóla.
Skólareglum Nesskóla er ætlað að skapa starfsanda sem byggir á vellíðan, gagnkvæmri virðingu og samábyrgð allra í skólasamfélaginu. Þær skulu tryggja vinnufrið í kennslustundum, almenn mannréttindi og öryggi í samskiptum. Skólareglur taka til alls skólasamfélagsins og er öllum skylt að fara eftir þeim. Þær eiga við á skólatíma, í skólahúsnæðinu, mötuneyti, á skólalóðinni, í skólabílnum og í ferðum sem farnar eru á vegum skólans.
Almenn umgengni skal einkennast af umburðarlyndi og kurteisi, snyrtimennsku og virðingu fyrir eignarréttinum. Líta ber á vinnufrið í skólastofunni sem sjálfsögð mannréttindi.
- Öllum ber að vera stundvísir og ganga hljóðlega um húsakynni skólans. Tilkynna ber forföll samdægurs. Leyfi í 1-2 daga getur forráðamaður/foreldri sótt um til umsjónarkennara eða ritara. Öll lengri leyfi þarf að sækja um til skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra. Notkun farsíma er óheimil í tímum.
- Nemendur 1.-7. bekkjar eiga að fara út í frímínútum. Nemendur í 8. - 10. bekk fara ekki út í frímínútum. Nemendum 1. -7. bekkjar er óheimilt að fara út af skólalóðinni á skólatíma nema með leyfi starfsfólks. Virða ber eignarrétt íbúa svæðisins. Ætlast er til að nemendur hafi hjálm á höfði við notkun hjóla, hjólabretta, línuskauta og á hjólaskóm.
- Stuðla ber að heilbrigðum lífsháttum varðandi neysluvenjur, útivist og hreyfingu. Óheimilt er að vera með tyggjó, sælgæti eða gosdrykki nema með sérstöku leyfi. Neysla hvers kyns vímuefna er með öllu óheimil, þar með talið tóbak og áfengi.
- Gengið er að því sem gefnu að nemendur komi í skólann til að læra og skal allt skólastarf miðast við það. Nemendum ber að sinna heimanámi skv. fyrirmælum kennara. Nemendur skulu hlýða fyrirmælum starfsfólks skólans. Kennarar skrá öll tilvik í Mentor sem varða óásættanlega hegðun eða vinnubrögð ásamt athugasemdum um framfarir.
- Umsjónarkennarar skulu kynna og fjalla um skólareglur Nesskóla með nemendum sínum og kynna forráðamanni/foreldri reglurnar.
- Gæta skal hófs við beitingu viðurlaga við broti á skólareglum. Viðurlög skulu til þess fallin að hvetja nemendur til bættrar
hegðunar.
Bekkjarreglur
Á þeim grunni sem að ofan greinir gera nemendur hvers bekkjar bekkjarreglur um hvernig þeir vilja haga samskiptum sínum og vinnu í skólanum. Bekkjarreglur er skriflegar og undirritaður af öllum nemendum bekkjarins og tekinn til umræðu og endurskoðunar að minnsta kosti einu sinni yfir veturinn eða oftar ef þurfa þykir.

.jpg)





