Velkomin á heimasíðu Nesskóla

Nesskóli

Skólastefna

Stefna Nesskóla

 ,, Í grunnskólanum skal unnið að því í samvinnu við heimilin að búa nemendur undir líf og starf. Hlutur grunnskólans felst einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra. Þetta sameiginlega verkefni heimila og skóla kallar á náin tengsl, gagnkvæmt traust, gagnkvæma upplýsingamiðlun, samábyrgð og samvinnu.”(Aðalnámskrá grunnskóla, almennur hluti bls. 14)

  • Starfið í Nesskóla á að snúast um að auka víðsýni nemenda þannig að þeir verði sem best búnir undir að taka þátt í síbreytilegu nútímasamfélagi.
  • Skólinn á að kenna nemendum um veröldina sem við búum í þannig að þeir verði  hæfari til að taka þátt í starfi samfélagsins og bæta það.
  • Skólinn okkar á að vera menntastofnun þar sem allir fá tækifæri til að afla sér  þekkingar og öðlast leikni.
  • Skólinn á að vera uppeldisstofnun þar sem allir geta þroskast og aukið sjálfstraust og baráttuþrek sitt.
  • Í Nesskóla er stefnt að því að allir nemendur geti átt sér griðarstað þar sem þeir geta unnið verk sín ánægðir og sáttir.

 

Helstu markmið skólastarfsins eru:

  • að nemendum líði vel í skólanum
  • að efla jákvætt hugarfar og virðingu nemenda gagnvart námi og skólagöngu
  • að auka markvisst ábyrgð nemenda á námi sínu
  • að stuðla að jafnrétti þannig að allir séu virt til jafns í leik og starfi
  • að taka tillit til ólíkra þarfa nemenda
  • að kenna nemendum almenna kurteisi og umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra
  • að hvetja til jákvæðra samskipta heimila og skóla þar sem foreldrar taka  virkan þátt í námi og starfi barna sinna
  • að stuðla að jákvæðum samskiptum við fyrirtæki og stofnanir í bæjarfélaginu
  • að stuðla að hollum lífsvenjum og heilbrigði nemenda
  • að auka skilning og ábyrgð nemenda á náttúrunni og umhverfi sínu
  • að efla frumkvæði og sköpunargleði nemenda
  • að gera námsumhverfi aðlaðandi
  • að leggja áherslu á mikilvægi umsjónarkennarans

 

Til að ná þessum markmiðum mun skólinn

  • hvetja kennara til að beita fjölbreyttum kennsluaðferðum
  • hafa góð og fjölbreytt námsgögn í boði fyrir nemendur og kennara
  • fræða nemendur um almenna kurteisi og umgengnisvenjur
  • upplýsa foreldra um skólastarfið með viðtölum, á heimasíðunni nesskoli.is, fréttabréfum og á foreldrafundum
  • hafa sameiginlega kennarafundi einu sinni í mánuði
  • stuðla að samvinnu kennara
  • stuðla að hlýlegu og hvetjandi umhverfi í skólanum
  • hafa skólalóðina vel skipulagða og vel útbúna leiktækjum
  • meta vinnu nemenda reglulega með ýmsum hætti
  • leggja áherslu á vettvangsferðir og umhverfisfræðslu
  • hvetja nemendur til að taka þátt í frjálsu félagsstarfi í bæjarfélaginu
  • fræða nemendur um skaðsemi vímuefna
  • kenna nemendum að bera virðingu fyrir skólanum, eigum hans og starfsfólki
  • viðhafa skipulegt eftirlit og aðhald með skólastarfinu
  • endurmeta og styrkja starf umsjónarkennarans og gera honum kleift að halda uppi góðu sambandi við foreldra og nemendur
  • gefa kennurum kost á fjölbreyttri endurmenntun
  • hafa ávallt í skólanum fullkominn tölvubúnað til afnota fyrir nemendur og kennara
  • hrósa nemendum sem vinna vel og hvetja þá til enn betri verka
  • fylgja virkri áætlun gegn einelti
  • efla samvinnu nemenda

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn