Matseðill

Frá haustinu 2017 hefur verið sameiginlegur matseðill fyrir alla leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð. Matseðilinn rúllar á 7 vikna fresti og þeir sem sjá um matinn koma til með að hafa úr nokkrum uppskriftum að velja hvern dag. Við samsetningu matseðlana er farið eftir ráðleggingum frá landlæknisembættinu sem styðjast við samnorrænar næringarráðleggingar. Hér fyrir neðan er hægt að sjá matseðla fyrir hverja viku.

  • Fiskur eða fiskréttir tvisvar í viku. Líka feitur fiskur.
  • Kjöt eða kjötréttir tvisvar í viku.
  • Súpur, skyr, hrísgrjónagrautur eða léttur réttur einu sinni í viku.
  • Grænmeti, salat og ávextir í boði alla daga.
  • Gróft brauð (með háu hlutfalli trefja).
  • Grænmetisréttir, tvisvar sinnum í mánuði í stað kjötrétta.

 


2. apríl - Grísabuff með steinselju kartöflum, brúnni sósu og rauðkáli.

3. apríl - Kjúklingaleggir á beini með rjómalagaðri BBQ sósu og hrísgrjónum.

4. apríl - Fiskur í raspi með kartöflum, hvítlaukssósu og súrum gúrkum.

5. apríl - Skyrsúpa með ávöxtum og smurðu brauði.


8. apríl - Spaghettí bolognese með hvítlauksbrauði.

9. apríl - Svikinn héri með brúnni sósu og kartöflumús.

10. apríl - Plokkfiskur með soðnum kartöflum og rúgbrauði.

11. apríl - Vínarsnitsel með steiktum kartöflum, sveppasósu og grænum baunum.

12. apríl - Íslensk kjötsúpa með skólabollu.


15. apríl - Soðinn fiskur með kartöflum, rúgbrauði og tómatsósu.

16. apríl - Grænmetisbuff með hrísgrjónum, salati og kaldri hvítlaukssósu.

17. apríl - Hamborgaraveisla.

18. apríl - Fiskur í orlý með hrísgrjónum og súrsætri sósu.

19. apríl - Hrísgrjónagrautur með slátri og kanilsykri.


22. apríl - Pasta carbonara með beikonbitum og hvítlauksbrauði.

23. apríl - Kjúklingur í korma með hrísgrjónum og naan-brauði.

24. apríl - Fiskibollur með brúnni laukssósu og soðnum kartöflum og gulrótum.

25. apríl - Sumardagurinn fyrsti.

26. apríl - Starfsdagur.