Janúar > Febrúar
Rímspillisár
Gleðilegt nýtt ár!
🍕 Janúar matseðill
15. janúar - Pasta með skinku, grænmeti og heitri hvítlaukssósu.
16. janúar - Vínarsnitsel með steiktum kartöflum og sveppasósu.
17. janúar - Ofnbakaður fiskur með karrýsósu og hrísgrjónum.
18. janúar - Steiktur kjúklingur með kartöflubátum og kokteilsósu.
19. janúar - Mexíkönsk kjúklingasúpa með snakki og brauði.
Rímspillisár
Hvenær er næsta rímspillisár?
Í svonefndu fingrarími er til regla sem segir til um hvenær rímspillisár er. Reglan er svona: Rímspillisár er þegar aðfaradagur árs (það er seinasti dagur ársins á undan) er laugardagur og næsta ár á eftir er hlaupár.
Nánar má lesta um rímspillisár á Vísindavefnum: https://www.visindavefur.is/svar.php?id=83139&fbclid=IwAR1qlP8sn3evpal4nQ0RGXt1PpzYFAml4V4XI1YXoP1UmH7vmD2Ttd2XnVs
Hinseginfræðsla grunnskólanna
Hinseginfræðsla grunnskólanna
Í lok árs 2022 undirritaði Fjarðabyggð samstarfssamning við Samtökin ’78 um fræðslu til handa starfsfólki og nemendum í skólum Fjarðabyggðar. Nú er komið að því að fræðslan fari fram í Nesskóla þann 16.janúar næstkomandi. Fræðslan verður fyrir þrjá árganga í skólanum (3. bekk, 6. bekk og 9. bekk). Fræðslan fer fram á skólatíma og er gert ráð fyrir 1-2 kennslutímum í hverjum bekk.
Einnig ætla Samtökin ‘78 að bjóða upp á tvo opna foreldrafundi í Fjarðabyggð. Sá fyrri verður í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mánudaginn 15. janúar kl. 17:00-18:00; og sá síðari í Nesskóla þriðjudaginn 16. janúar kl 17:00-18:00.
Við hvetjum alla foreldra að mæta á annan hvorn fundinn.
Hvað er að gerast?
- 16. janúar - Hinseginfræðsla fyrir 3., 6. og 9. bekk
- 26. janúar - Bóndadagur
- 2. febrúar - Þorrablót yngsta stigs
- 12. febrúar - Bolludagur
- 13. febrúar - Sprengidagur
- 14. febrúar - Öskudagur - Skóladagur styttist - Vinasel OPIÐ
- 15. - 16. febrúar - Vetrarfrí > Vinasel LOKAÐ.
Hvenær kemur sólin?
Margir eru eflaust farnir að velta því fyrir sér hvenær sólin fer að sýna sig aftur. Hér er góð mynd sem er birt með góðfúslegu leyfi Hlyns Sveinssonar sem sýnir okkur hvenær við getum farið að baka sólarpönnukökur. Íslendingar sem ekki sjá sólina í nokkrar vikur eða mánuði á hverjum vetri og gera sér gjarnan dagamun þegar hún fer að skína aftur. Við sem erum alin upp við sólarpönnukökur vitum að með þeim byrjar nýtt tímabil birtu, tilhlökkunar og gleði.