Skólahald í Fjarðabyggð – Þriðjudaginn 28. mars
Ekkert skólahald verður í leik- og grunnskólum í Neskaupstað, á Eskifirði, og Fáskrúðsfirði á morgun. Á öllum þessum stöðum er þungfært víða á götum og göngustígum auk þess sem rýming er enn í gildi á Eskifirði og í Neskaupstað og gildir hún í það minnsta fram eftir morgni.
Staðan verður tekin á nýjan leik í fyrramálið og gefin út tilkynning upp úr kl. 11:00. Fólk er beðið að fylgjast vel með miðlum sveitarfélagsins vegna þessa auk tilkynninga um aðra þætti í þjónustu sveitarfélagsins.
Skólahald verður með hefðbundnum hætti á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði.
Snjóruðningur mun hefjast allstaðar snemma í fyrramálið, en þar er mikið verk fyrir höndum. Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitsemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.Skólaha
Skólavegur 740 Neskaupstað
Sími á skrifstofu: 4771124 Símanúmer Vinasels: 4709114 Netföng: ritarinesskola@skolar.fjardabyggd.is karen@skolar.fjardabyggd.is vinasel@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 07:30 - 13:00 föstudaga |