Árgangur 2010
Hérna koma heiti verkefna árgangs 2010 sem útskrifuðust úr skólanum skólaárið 2025 - 2026
- Spjót Óðins úr Gylfaginning. Handunnið og hannað spjót ásamt standi úr krossviði með samsettum rúnum - Fannar
- Fatamerkið PRICIN. Hönnun á merki, unnið í fablab og prentað á peysu og buxur. - Dagur, Birkir og Atli
- Fatamerkið Sonder, útlit og hönnun fata ásamt kostnaðaráætlun fyrir fyrirtækinu per mánuð. - Benedikt, Heiðmar og Styrmir
- Instrumental-tónlistarmix. Sköpun tónlistar með DAW (digital audio workshop) forriti (Stafræn hljóðvinnsla) sem heitir FL Studio. - Baldur
- Skotmark. Skotmark fyrir æfingu í skotfimi, unnið úr málmi. - Auðunn
- Morð í 10.bekk. Skálduð morðsaga um 10.bekkinn. - Jóhanna
- Mínar uppáhalds. Uppskriftabók með ýmsum baksturs uppskriftum héðan og þaðan, skipt niður í kafla eftir tegundum. - Sif
- Útskriftarlag. Nýr texti um 10.bekkinn við lagið Paradís með Rjómanum. - Helena og Kolfinna
- Wewelsburg kastali. Málverk og texti um málverkið. - Lilja
- Glódís og flughræðslan. Frumsamin barnabók með lituðum teikningum. - Guðrún
- Þeim var ég verst. Íslendingasagan Laxdæla gerð að nútímasögu með sama söguþræði. - Serena
- 10 aðferðir til að nota banana. Uppskriftabók með öllum helstu leiðum til þess að nota banana. - Nóni og Þórður
- Viðtal við hestamenn. Viðtöl tekin við hestafólk og sett upp sem myndband. - Hrafnhildur
- Höfuðleður/beisli. Höfuðleður fyrir hesta búið til úr gömlu belti og skreytt. - Dalía
- Stuttmynd/viðtal við ömmu og afa. Stutt heimildarmynd um ömmu og afa, fjallar um hvernig það var að alast upp í sveit í gamla daga, hvernig þau kynntust og lífið eftir það. - Hófí
- Uppskriftaspjöld. Uppskriftaspjöld með mínum uppáhalds uppskriftum, skipt niður í aðalrétti, eftirrétti og millimál. - Fanney
Myndir frá verkefnum eru
hér
