Lokaverkefni í 10. bekk
Lokaverkefni í 10. bekk er orðinn fastur liður í starfi Nesskóla síðan skólaárið 2019 - 2020
Markmið með þessu verkefni er að efla sjálfstæði og ábyrgð nemenda en þeir ákveða sjálfir verkefnið, afla gagna, framkvæma og kynna. Nemendum bar saman um að erfiðast væri að velja verkefni en vinnan skemmtileg. Fjöldi gesta leggja leið sína í Nesskóla þar sem nemendur fræða gesti um verkefnin. Ummæli gesta hafa verið; að verkefnin væru fjölbreytt, fræðandi, skemmtileg og metnaðarfull.
Hér er hægt að skoða upplýsingar um hvern hóp fyrir sig.