Verndum bernskuna – tíu heilræði
Verndum bernskuna var samstarfsverkefni sem hleypt var af stokkunum árið 2005. Markmið verkefnisins var að vekja samfélagið til umhugsunar um þau verðmæti sem felast í bernskunni og minna á mikilvægt hlutverk foreldra og uppalenda í lífi barna.
Í tengslum við verkefnið voru sett fram tíu heilræði fyrir foreldra og uppalendur sem eiga ekki síður erindi við okkur í dag:
- Leyfum barninu að vera barn
- Þorum að axla ábyrgð sem uppalendur
- Viðurkennum barnið eins og það er
- Verum til staðar fyrir barnið
- Munum að rækta okkur sjálf
- Hlífum barninu við ónauðsynlegu áreiti
- Setjum foreldrahlutverkið í forgang
- Veitum frelsi – en setjum mörk
- Verum barninu mikilvæg
- Verndum bernskuna
Heilræðin minna okkur á mikilvægi þess að skapa börnum öruggt og gott umhverfi þar sem þau fá svigrúm til að þroskast, njóta bernskunnar og vera þau sjálf.
Heimild: Verndum bernskuna – Umboðsmaður barna o.fl., 2005.
