Erasmus+

Skólaárið 2021 - 2022

Skólaárið 2021 - 2022 Hélt Nesskóli áframhaldandi samstarfi við Danmörk, Eistland, Lettland og Portúgal núna með árgangi 2006. Var bekknum skipt upp í þrjá hópa og skiptust þau á að fara til Eistlands, Lettlands og síðast Portúgal. Þrátt fyrir að vaninn væri að gista í heimahúsum þá var það ekki rauninn í þessu verkefni. Var það ekki leyfilegt vegna Covid 19 og því gistu þau á hinum ýmsu stöðum þar á meðal í sumarhúsi rétt utan við Hapsalu á Eistlandi,  Gistiheimili rétt út fyrir Jelgava í Lettlandi og á hóteli í Amarante í Portúgal. Var það virkilega skemmtileg lífsreynsla og mörg kynntust bekkjarfélögum sínum upp á nýtt og sáu aðra hlið á hvort öðru. Verkefnið kláraðist þetta vor 2022.


Þetta sama ár þá tókum við á móti nemendum frá Svíþjóð, Finnlandi og Lettlandi