Skólareglur
Skólareglur Nesskóla
Skólareglum Nesskóla er ætlað að skapa starfsanda sem byggir á vellíðan, gagnkvæmri virðingu og samábyrgð allra í skólasamfélaginu. Þær eiga við á skólatíma, í skólahúsnæðinu, í mötuneyti, á skólalóðinni í skólabílnum og í ferðum sem farnar eru á vegum skólans.
Umsjónarkennarar skulu kynna og fjalla um skólareglur Nesskóla með nemendum sínum og kynna foreldrum/forsjáraðilum reglurnar. Kennarar hafa möguleika á að skrá öll tilvik í Mentor er varða óásættanlega hegðun eða vinnubrögð.
Gæta skal hófs við beitingu viðurlaga við broti á skólareglum. Viðurlög skulu til þess fallin að hvetja nemendur til bættrar hegðunar.
Skólareglur eru byggðar á og unnar í samræmi við 14. grein laga um grunnskóla nr. 91/2008 og reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins.
Almennar reglur
- Skólinn er okkar vinnustaður og við gerum skólaveruna sem ánægjulegasta með hjálpsemi, tillitssemi og vingjarnlegri framkomu.
- Nemendur skulu hlýða fyrirmælum starfsfólks skólans.
- Við göngum vel um, förum vel með bækur og aðrar eigur skólans bæði utan sem innan dyra.
- Nemendum ber að sinna heimanámi skv. fyrirmælum kennara. Sérstök áhersla skal lögð á heimalestur.
- Við hengjum yfirhafnir okkar í fatahengi og röðum skónum okkar í skóhillur.
- Skólinn ber hvorki ábyrgð á persónulegum munum né fjármunum nemenda.
- Á skólalóð skulu nemendur sýna aðgæslu og tillitssemi. Nemendur í 1. – 7. bekk eru úti í frímínútum og er þeim óheimilt að fara út af skólalóð.
- Nemendur skilja snyrtilega við kennslustofur í lok kennsludags.
- Notkun farsíma er óheimil á skólatíma í húsnæði skólans, íþróttahúsi, sundlaug og á skólalóð.
- Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á að nemendur neyti hollrar og næringarríkrar fæðu. Neysla gosdrykkja, orkudrykkja og sælgætis er óheimil nema við sérstök tilefni. Neysla orkudrykkja er þó ávallt með öllu óheimil.
- Allt sorp er flokkað.
- Lífrænn úrgangur er settur í safntunnur.
Reglur um skólasókn
- Við mætum stundvíslega í skólann og komum vel undirbúin.
- Tilkynna ber forföll samdægurs.
- Leyfi í 1-2 daga getur foreldri/forsjáraðili sótt um til umsjónarkennara eða ritara
- Öll lengri leyfi ber að sækja um skriflega á heimasíðu skólans hér. Foreldrar/forsjáraðilar bera ábyrgð á að nemandi vinni upp það sem hann kann að missa úr námi. Mikilvægt er að sótt sé um leyfi með a.m.k. þriggja daga fyrirvara, þetta er sérlega mikilvægt þegar um lengri leyfi er að ræða.
Reglur varðandi farartæki
- Nemendur eiga skilyrðislaust að nota hjálm við notkun reiðhjóla, raf- eða vélknúinna ökutækja, hlaupahjóla, hjólabretta, línuskauta og hjólaskauta.
- Notkun reiðhjóla, raf- eða vélknúinna ökutækja, hlaupahjóla, hjólabretta, línuskauta og hjólaskauta er bönnuð á skólalóðinni og í skólanum.
- Það er á ábyrgð nemenda og foreldra/forsjáraðila að nemendur noti öryggishjálma
Bekkjarsáttmáli
Á þeim grunni sem að ofan greinir gera nemendur hvers bekkjar bekkjarsáttmála um hvernig þeir vilja haga samskiptum sínum og vinnu í skólanum. Bekkjarsáttmálar eru skriflegir og undirritaðir af öllum nemendum bekkjarins. Þeir skulu teknir til umræðu og endurskoðunar að minnsta kosti einu sinni hvert skólaár.
Skýr mörk - ófrávíkjanlegar öryggisreglur
Skýr mörk eru sett til að tryggja vinnufrið í kennslustundum, almenn mannréttindi og öryggi í samskiptum.
- Ekkert einelti
- Ekkert ofbeldi
- Engin vopn
- Engin ávana- eða fíkniefni, þar með talið áfengi, tóbak, rafrettur og fíkniefni
- Engar ógnanir, ögranir eða hótanir
- Engin vísvitandi skemmdarverk eða þjófnaður
Meðferð agabrota
Ítrekuð brot á skólareglum
Skólinn bregst við frávikum á hegðun sem hér segir: Hegðunarfrávik. Valdi nemandi truflun á skólastarfi tekur umsjónarkennari málið í sínar hendur og vinnur að lausn þess í samvinnu við foreldra og kennara. Beri það ekki árangur er málinu vísað til skólastjóra sem vinnur að lausn málsins í samræmi við lög og reglugerðir.
Brottrekstur úr tíma
Valdi nemandi truflun á skólastarfi og lætur ekki segjast við áminningu kennara er heimilt að vísa honum úr tíma til skólastjórnenda. Kennari greinir umsjónarkennara frá málavöxtum og umsjónarkennari hefur samband við foreldra.
Notkun tóbaks og áfengis
Verði nemandi uppvís að hafa notað tóbak á skemmtunum skólans eða í skólaferðalögum, í skóla eða á skólalóð er haft samband við foreldra. Ef um notkun áfengis er að ræða skal haft samband við foreldra eða lögreglu. Ef um er að ræða ítrekuð brot er nemandi útilokaður frá þátttöku í öllum skemmtunum og ferðum á vegum skólans.
Lögbrot – alvarleg agabrot - viðurlög
Þegar nemendur brjóta alvarlega af sér eru foreldrar kallaðir til. Nemanda er vísað frá skóla á meðan afgreiðsla máls er undirbúin. Samkvæmt lögum má málsmeðferð taka allt að 5 virka daga án þess að nemanda sé útvegað annað skólaúrræði. Skólinn vinnur samkvæmt verklagsreglum um málsmeðferð vegna lögbrota og alvarlegra agabrota.
