Lestrarstefna Nesskóla

Lestur er ein mikilvægasta undirstaða náms og leggur Nesskóli áherslu á markvisst og fjölbreytt lestrarnám alla skólagönguna. Lestraráætlun skólans hefur það að markmiði að efla lestrarfærni, lesskilning og lestraráhuga nemenda og tryggja samfellu í lestrarkennslu frá upphafi skólagöngu.

Fylgst er reglulega með framförum nemenda og kennslan aðlöguð að þörfum hvers og eins. Nemendur eiga að lesa fimm sinnum í viku heima og er reglulegur lestur mikilvægur þáttur í að byggja upp öryggi, færni og lestrarvenjur.

Á yngsta stigi skólans er unnið með Byrjendalæsi, en nánari upplýsingar um það má finna hér.

Gott samstarf heimilis og skóla er mikilvægur þáttur í að efla læsi og skapa jákvætt viðhorf til lesturs.