Saga Nesskóla

Í Neskaupstað búa í dag um 1530 manns. Í bænum er öflugt skólasamfélag og eru þar auk Nesskóla, Leikskólinn Eyrarvellir, Tónlistarskóli Fjarðabyggðar, Verkmenntaskóli Austurlands, íþróttahús, sundlaug og gervigrasvöllur. Nesskóli var formlega stofnaður árið 1909 í Nesþorpi og luku 16 nemendur prófi frá honum vorið 1910. Árið 1911 var reist sérstakt skólahús og var það fyrsta steinsteypta húsið í þorpinu. Árið 1931 var svo tekið í notkun glæsilegt skólahúsnæði, teiknað af Guðjóni Samúelssyni, húsasmíðameistara ríkisins.
Hér áður var rekinn skóli á Kirkjumel sem þjónustaði Norðfjarðarsveit, en árið 1994 hófst skólaakstur barna úr sveitinni í Nesskóla. Lengst af hýsti Nesskóli 1. – 7. bekk og unglingadeildir voru til húsa í Verkmenntaskóla Austurlands vegna plássleysis í Nesskóla. Rétt fyrir aldamótin 2000 var tekin ákvörðun um einsetningu á Nesskóla. Í kjölfarið var farið í allmiklar breytingar og viðbyggingu við Nesskóla til að geta hýst alla nemendur skólans. Nýtt skólahúsnæði var, eins og áður segir, formlega tekið í notkun árið 2005. Í dag eru allir nemendur skólans í sama húsnæði auk Tónlistarskóla Fjarðabyggðar og almenningsbókasafns bæjarins sem einnig er skólabókasafn. Sú nýbreytni verður í vetur að Vinasel (frístund) og lengri viðvera (fyrir nemendur í 7. og 8. bekk) verða í húsnæði Sparisjóðs Norðfjarðar, nánar tiltekið á efri hæð Egilsbrautar 25.
