Matseðill
Frá haustinu 2017 hefur verið sameiginlegur matseðill fyrir alla leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð. Matseðilinn rúllar á 7 vikna fresti og þeir sem sjá um matinn koma til með að hafa úr nokkrum uppskriftum að velja hvern dag. Við samsetningu matseðlana er farið eftir ráðleggingum frá landlæknisembættinu sem styðjast við samnorrænar næringarráðleggingar. Hér fyrir neðan er hægt að sjá matseðla fyrir hverja viku.
- Fiskur eða fiskréttir tvisvar í viku. Líka feitur fiskur.
- Kjöt eða kjötréttir tvisvar í viku.
- Súpur, skyr, hrísgrjónagrautur eða léttur réttur einu sinni í viku.
- Grænmeti, salat og ávextir í boði alla daga.
- Gróft brauð (með háu hlutfalli trefja).
- Grænmetisréttir, tvisvar sinnum í mánuði í stað kjötrétta.
1. desember - Plokkfiskur með rúgbrauði og smjöri
2. desember - Sænskar kjötbbollur með kartöflumús og brúnni sósu
3. desember - Ofnbakaður fiskur með karrýsósu og hrísgrjón
4. desember - Vínarsnitsel með steiktum kartöflum, sveppasósu og steiktu grænmeti
5. desember - Grjónagrautur með kanilsykri og slátri
8. desember - Hakk og spaghettí með hvítlauksbrauði og gufusoðnum gulrótum
9. desember - Gúllas með hrísgrjónum og grænmeti
10. desember - Soðinn fiskur með kartöflum, rúgbrauði og smjöri
11. desember - Hakkabuff með lauksósu og steinseljukartöflum
12. desember - Rjómalöguð sveppasúpa með snittubrauði
15. desember - Fiskibollur í karrýsósu, hrísgrjónum og gufusoðnum gulrótum
16. desember - Slátur með soðnum kartöflum og jafningi
17. desember - Hamborgaraveisla
18. desember - Jólasteik með brúnum kartöflum, rauðkáli og rjómalagaðri sveppasósu
19. desember - Grjónagrautur með smurðu brauði og kanilsykri
