Erasmus+
Skólaárið 2021 - 2022
Skólaárið 2021 - 2022 Hélt Nesskóli áframhaldandi samstarfi við Danmörk, Eistland, Lettland og Portúgal núna með árgangi 2006. Var bekknum skipt upp í þrjá hópa og skiptust þau á að fara til Eistlands, Lettlands og síðast Portúgal. Þrátt fyrir að vaninn væri að gista í heimahúsum þá var það ekki rauninn í þessu verkefni. Var það ekki leyfilegt vegna Covid 19 og því gistu þau á hinum ýmsu stöðum þar á meðal í sumarhúsi rétt utan við Hapsalu á Eistlandi, Gistiheimili rétt út fyrir Jelgava í Lettlandi og á hóteli í Amarante í Portúgal. Var það virkilega skemmtileg lífsreynsla og mörg kynntust bekkjarfélögum sínum upp á nýtt og sáu aðra hlið á hvort öðru. Verkefnið kláraðist þetta vor 2022.
Þetta sama ár þá tókum við á móti nemendum frá Svíþjóð, Finnlandi og Lettlandi. Ákveðið var að hittast á Íslandi með öllum nemendum sem tóku þátt í þessu verkefni. Árgangur 2009 tók þátt í þessum hluta verkefnisins til að prufukeyra námsefnið. Þurftu þau að finna út hvað þau vildu betrumbæta í Neskaupstað. Þurftu þau að hugsa vel og vera raunsæ. Var Þeim skipt upp í hópa sem fóru í hugmyndavinnu. Þau þurftu að heyra í fólki sem gætu aðstoðað þau og fengið raunhæfar hugmyndir sem hægt væri að útfæra í raunverulegum aðstæðum. Komu margar hugmyndir úr þessu verkefni eins og fjölskylduklefi í sundlaugina, Klifurveggur og hjólabrettagarður í gömlu netagerðinni, stækkun á íbúðum aldraðra Breiðablik svo eitthvað sé nefnt. Var mikil kynningarhátíð í Nesskóla þar sem árgangur 2009 kynnti sín verkefni og árgangur 2007 voru svo þau sem kynntu námsefnisgerðina og enduðu vikuna í Reykjavík með hópnum sem komu til okkar.

