Full vika af frábærri skemmtun

Þessi skólavika er búin að vera stútfull af viðburðum. Í vikunni tókum við upp læsir appið til að halda utan um lestur nemenda. Það ættu allir bekkir að vera komnir með bekkjarkóða til að skrá sig inn. Ef ekki þá mælum við með því að fá bekkjarkóða hjá umsjónarkennara barnanna ykkar.

Við fórum í göngu á miðvikudaginn. Yngsta stig gekk uppfyrir keilur og inn að minnisvarða, gengu svo neðan við garða til baka. Miðstig gekk upp að Hólatjörnum þar sem nokkrir krakkar skelltu sér í vötnin og áttu góðan tíma saman. Unglingastig gekk svo upp í Bagalsbotna. Veðrið lék við okkur og allir áttu frábæran dag. Krakkarnir voru allir ekkert smá duglegir.

Á fimmtudaginn var gulur dagur. Þá sýndum við samhug í verki með því að mæta í gulu og sýna þar með stuðning við vitundarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.

Í vikunni komu einnig tveir nemendur í 7. GJS með tvær gæsir til að kryfja í náttúrufræði. Nýtti hópurinn góða veðrið og fóru með gæsirnar niður í fjöru. Verkefnið var bæði fróðlegt og áhugavert. Þökkum við þeim Loga Snæberg og Snæþóri Inga fyrir þetta frábæra framtak. 

Verkefnið Göngum í skólann byrjaði í vikunni og stendur til 7. október. Hvetjum við alla bæði nemendur og starfsfólk skólans til að taka þátt í því verkefni. 

Göngum í skólann er ekki eina verkefnið sem við erum að taka að okkur, heldur skráðum við 1. – 7. bekk í verkefnið Svakalegu Lestrarkeppnina. Keppninn byrjar 15. september og verður til 6. október. Auðvelt er að taka þátt með því að skrá allan lestur í lestrarappið, bæði starfsfólk, foreldrar og nemendur þurfa því að vera dugleg að skrá allan lestur þar inn. Einnig er hægt að halda utan um skráninguna á pappír en þá er mikilvægt að koma upplýsingum á kennara til að hægt sé að skrá í keppnina heildar mínútufjölda.

Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 6. október 2026
Skemmtilegar og viðburðaríkar vikur að baki
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 15. september 2026
Í gær, mánudaginn 14. september, tóku öll skólastig í Neskaupstað sig saman og tóku þátt í Styrkleikunum. Styrkleikarnir er viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem sýnt er þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning í verki. Mættu nemendur frá Leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands á SÚN völlin. Skiptu sér upp í lið og hlupu þvert á völlinn með kefli fram og til baka í boðhlaupi. Var hlaupið í dágóða stund áður en við tókum höndum saman og mynduðum hjarta á miðjum vellinum. Það var hann Hlynur Sveinsson sem tók myndina af hjartanu og klippti saman myndband af viðburðinum. Þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag í þetta sameiginlega verkefni ásamt öllum þeim sem komu að verkefninu að einhverju leiti. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrkleikana á heimasíðu krabbameinsfélagsins hér. Þeir sem vilja styrkja Styrkleikana er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Styrktarreikningur: Kt. 551001-3340 Rkn. 0166-26-201
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 2. september 2026
Næsta föstudag, 4. september verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein, styrktarfélag standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning. Við í Nesskóla tökum að sjálfsögðu þátt og hvetjum við alla til að mæta í sinni uppáhaldstreyju á föstudaginn.