Styrkleikarnir 2026

Í gær, mánudaginn 14. september, tóku öll skólastig í Neskaupstað sig saman og tóku þátt í Styrkleikunum. Styrkleikarnir er viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem sýnt er þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning í verki. Mættu nemendur frá Leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands á SÚN völlin. Skiptu sér upp í lið og hlupu þvert á völlinn með kefli fram og til baka í boðhlaupi. Var hlaupið í dágóða stund áður en við tókum höndum saman og mynduðum hjarta á miðjum vellinum. Það var hann Hlynur Sveinsson sem tók myndina af hjartanu og klippti saman myndband af viðburðinum. Þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag í þetta sameiginlega verkefni ásamt öllum þeim sem komu að verkefninu að einhverju leiti.

Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrkleikana á heimasíðu krabbameinsfélagsins hér. Þeir sem vilja styrkja Styrkleikana er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Styrktarreikningur:

Kt. 551001-3340

Rkn. 0166-26-201

 

Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 11. september 2026
Þessi skólavika er búin að vera stútfull af viðburðum. Í vikunni tókum við upp læsir appið til að halda utan um lestur nemenda. Það ættu allir bekkir að vera komnir með bekkjarkóða til að skrá sig inn. Ef ekki þá mælum við með því að fá bekkjarkóða hjá umsjónarkennara barnanna ykkar. Við fórum í göngu á miðvikudaginn. Yngsta stig gekk uppfyrir keilur og inn að minnisvarða, gengu svo neðan við garða til baka. Miðstig gekk upp að Hólatjörnum þar sem nokkrir krakkar skelltu sér í vötnin og áttu góðan tíma saman. Unglingastig gekk svo upp í Bagalsbotna. Veðrið lék við okkur og allir áttu frábæran dag. Krakkarnir voru allir ekkert smá duglegir.
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 2. september 2026
Næsta föstudag, 4. september verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein, styrktarfélag standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning. Við í Nesskóla tökum að sjálfsögðu þátt og hvetjum við alla til að mæta í sinni uppáhaldstreyju á föstudaginn.
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 16. júní 2026
Útskrift 10. bekkjar fór fram með stórkostlegri og hátíðlegri athöfn föstudaginn 5. júní síðastliðinn. Við kvöddum þennan flotta árgang 2010 með miklum söknuði í hjarta, enda voru þau búin að vera með okkur í tíu góð og afar viðburðarík ár. Árgangurinn var ávallt einstaklega öflugur í öllu félagslífi skólans, skemmtilega uppátækjasamur og alltaf duglegur að taka þátt í hverjum þeim fjölbreyttu viðburðum sem skólinn bauð upp á í gegnum tíðina. Það var dásamlegt að fylgjast með þeim þroskast og dafna á þessari löngu vegferð. Við óskuðum þeim innilega velfarnaðar og gæfu á öllum þeim nýju og spennandi sviðum sem þau taka sér fyrir hendur í lífinu. Um leið þökkuðum við þessum frábæru ungmennum kærlega fyrir yndisleg og ógleymanleg síðastliðin tíu ár saman í skólanum okkar. Þau skildu eftir sig dýrmætar minningar og við vitum að framtíðin færir þeim frábær tækifæri. Gangi ykkur sem allra best!  p.s. smá útskriftar tiktok sem þau gerðu