Haustfréttir
Haustfréttir
Síðustu vikur hafa verið mjög viðburðaríkar. Skólaþing fyrir 5. – 10. bekk og aðstandendur þeirra var haldið 22. október sem gekk mjög vel. Þema þingsins voru forvarnir og eru starfsmenn skólans að vinna úr þeim niðurstöðum. Strumpaþing fyrir 1. – 4. bekk verður svo haldið næstkomandi mánudag, 9. nóvember, með aðstoð 10. bekkinga.
23. október þá var yngsta stigi boðið að sjá og kynnast Þjóðaróperunni. Fóru nemendur með rútu á Eskifjörð og hlustuðu og fræddust um óperuna. Alltaf gaman þegar við höfum tækifæri á að sjá og kynnast öllum menningarviðburðum.
Fjölgreindarleikarnir voru haldnir 27. október. Kennararnir voru búnir að útbúa 12 metnaðarfullar og skemmtilegar stöðvar. Nemendum er skipt upp í hópa þvert á bekki og vinna saman verkefni í 15 mínútur þar til þau fara á næstu stöð. Nemendur í 9. og 10. bekk voru leiðtogar í sínum hópi og það var gaman að sjá að sumir nemendur tóku hlutverk sitt alvarlega og leiddu hópinn sinn með prýði. Eftir fjölgreindarleikana fóru allir í gott vetrarfrí.











Núna eru allir bekkir á yngsta stigi búin að halda smá sýningu á sal og hefur verið virkilega gaman að fylgjast með krökkunum koma fram og láta ljós sitt skína.
Nemendur í 1. HIG fengu endurskinsvesti að gjöf frá Síldarvinnslunni sem er kærkomið núna þegar skammdegið er að skella á. Erum við afar þakklát fyrir endurskinnsvestin sem Síldarvinnslan hefur gefið síðustu ár.

Mánudaginn 9. nóvember var Strumpaþig á yngsta stigi. Þar voru nemendum á yngsta stigi skipt upp í hópa og þurftu að svara spurningum líkt og á Skólaþinginu. 10. ABF skipti sér einnig á borðin og hjálpuðu við umræður og skrifa niðurstöður.




Í næstu viku verður svo þemavika. Á mánudaginn verður starfsdagur og þá mæta nemendur ekki í skólann heldur verður starfsfólk að undirbúa sínar stöðvar og gera klárt fyrir þemavikuna.



