Allt skólahald fellur niður í Fjarðabyggð fimmtudaginn 6. febrúar

Allt skólahald fellur niður í Fjarðabyggð fimmtudaginn 6. febrúar


Veðurútlitið hefur versnað og nú hefur verið gefin út RAUÐ VIÐVÖRUN VEGNA VEÐURS   Á Austfjörðum og gildir hún frá kl. 20:00 í kvöld, miðvikudag til klukkan 04:00 aðfaranótt fimmtudags og svo aftur í fyrramálið frá klukkan 07:00 – 18:00. Fólk er beðið um að vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjulausu á meðan óveðrið gengur yfir.

W czwartek 6 lutego wszystkie zajęcia szkolne w Fjarðabyggð zostają odwołane


Prognozy pogody uległy pogorszeniu i obecnie wydano CZERWONE OSTRZEŻENIE   dotyczące pogody w Austfjörður, które obowiązuje od 20:00 dziś wieczorem, w środę do 04:00 w czwartek wieczorem, a następnie ponownie dzisiaj rano od 07:00 do 18:00. Prosimy ludzi, aby do czasu ustania burzy w ogóle nie wychodzili na drogę, chyba że jest to konieczne.

Starfsfólk Nesskóla

Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 15. september 2026
Í gær, mánudaginn 14. september, tóku öll skólastig í Neskaupstað sig saman og tóku þátt í Styrkleikunum. Styrkleikarnir er viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem sýnt er þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning í verki. Mættu nemendur frá Leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands á SÚN völlin. Skiptu sér upp í lið og hlupu þvert á völlinn með kefli fram og til baka í boðhlaupi. Var hlaupið í dágóða stund áður en við tókum höndum saman og mynduðum hjarta á miðjum vellinum. Það var hann Hlynur Sveinsson sem tók myndina af hjartanu og klippti saman myndband af viðburðinum. Þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag í þetta sameiginlega verkefni ásamt öllum þeim sem komu að verkefninu að einhverju leiti. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrkleikana á heimasíðu krabbameinsfélagsins hér. Þeir sem vilja styrkja Styrkleikana er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Styrktarreikningur: Kt. 551001-3340 Rkn. 0166-26-201
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 11. september 2026
Þessi skólavika er búin að vera stútfull af viðburðum. Í vikunni tókum við upp læsir appið til að halda utan um lestur nemenda. Það ættu allir bekkir að vera komnir með bekkjarkóða til að skrá sig inn. Ef ekki þá mælum við með því að fá bekkjarkóða hjá umsjónarkennara barnanna ykkar. Við fórum í göngu á miðvikudaginn. Yngsta stig gekk uppfyrir keilur og inn að minnisvarða, gengu svo neðan við garða til baka. Miðstig gekk upp að Hólatjörnum þar sem nokkrir krakkar skelltu sér í vötnin og áttu góðan tíma saman. Unglingastig gekk svo upp í Bagalsbotna. Veðrið lék við okkur og allir áttu frábæran dag. Krakkarnir voru allir ekkert smá duglegir.
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 2. september 2026
Næsta föstudag, 4. september verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein, styrktarfélag standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning. Við í Nesskóla tökum að sjálfsögðu þátt og hvetjum við alla til að mæta í sinni uppáhaldstreyju á föstudaginn.