Breyttur útivistartími

Útivistartími barna og unglinga tók breytingum 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.

Sömu opinberu reglur gilda því um öll börn í sama árgangi. Ýmsar ástæður eru fyrir því að takmarka útivist barna og unglinga á kvöldin. Helstar eru:

  • Nægur svefn er mikilvæg forsenda góðrar heilsu, vellíðunar og árangurs í skólanum.
  • Það að vera komin heim á skikkanlegum tíma og eiga smástund heima fyrir háttinn hjálpar vaxandi fólki að fara fyrr að sofa.
  • Þreytt og illa sofið fólk er líklegra til að lenda í slysum og óhöppum, sérstaklega þegar skyggja tekur.
  • Börn og unglingar sem eru úti langt fram á kvöldin eru líklegri til að fara fyrr að fikta við tóbak, áfengi og fíkniefni.
  • Alvarlegar líkamsárásir og óæskileg kynlífsreynsla eiga sér oft stað seint á kvöldin.

Reglur um útivistartíma segja til um hvað börn mega vera lengi úti en ekki hvað þau eiga að vera lengi úti. Foreldrar geta að sjálfsögðu sett sínar eigin reglur innan ramma útivistarreglna.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu. Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.

Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 15. september 2026
Í gær, mánudaginn 14. september, tóku öll skólastig í Neskaupstað sig saman og tóku þátt í Styrkleikunum. Styrkleikarnir er viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem sýnt er þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning í verki. Mættu nemendur frá Leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands á SÚN völlin. Skiptu sér upp í lið og hlupu þvert á völlinn með kefli fram og til baka í boðhlaupi. Var hlaupið í dágóða stund áður en við tókum höndum saman og mynduðum hjarta á miðjum vellinum. Það var hann Hlynur Sveinsson sem tók myndina af hjartanu og klippti saman myndband af viðburðinum. Þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag í þetta sameiginlega verkefni ásamt öllum þeim sem komu að verkefninu að einhverju leiti. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrkleikana á heimasíðu krabbameinsfélagsins hér. Þeir sem vilja styrkja Styrkleikana er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Styrktarreikningur: Kt. 551001-3340 Rkn. 0166-26-201
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 11. september 2026
Þessi skólavika er búin að vera stútfull af viðburðum. Í vikunni tókum við upp læsir appið til að halda utan um lestur nemenda. Það ættu allir bekkir að vera komnir með bekkjarkóða til að skrá sig inn. Ef ekki þá mælum við með því að fá bekkjarkóða hjá umsjónarkennara barnanna ykkar. Við fórum í göngu á miðvikudaginn. Yngsta stig gekk uppfyrir keilur og inn að minnisvarða, gengu svo neðan við garða til baka. Miðstig gekk upp að Hólatjörnum þar sem nokkrir krakkar skelltu sér í vötnin og áttu góðan tíma saman. Unglingastig gekk svo upp í Bagalsbotna. Veðrið lék við okkur og allir áttu frábæran dag. Krakkarnir voru allir ekkert smá duglegir.
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 2. september 2026
Næsta föstudag, 4. september verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein, styrktarfélag standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning. Við í Nesskóla tökum að sjálfsögðu þátt og hvetjum við alla til að mæta í sinni uppáhaldstreyju á föstudaginn.