Farsældarsáttmálinn - Kynning á sal Nesskóla

Heimili og skóli í samstarfi við foreldrafélagið býður upp á kynningu á farsældarsáttmálanum.
Kynningin verður þann 2. október kl. 17:00 í sal Nesskóla.

 

Hvað er Farsældarsáttmálinn og til hvers er hann?
Farsældarsáttmálinn er verkfæri sem byggir á því að foreldrar koma sér saman um ákveðin viðmið eða gildi
sem þeir telja mikilvæg til þess að styðja við vöxt og þroska allra barna í nærsamfélaginu. Hópurinn sameinast
um viðmiðin í sáttmálanum og myndar þannig þorp utan um börnin. Farsældarsáttmálinn gefur foreldrum
tækifæri til þess að forma samstarf sín á milli, styrkja foreldrastarfið og hlutverk foreldra sem lykilaðila í að
skapa farsælt samfélag. Rannsóknir hafa sýnt fram á forvarnargildi samstíga foreldrahóps auk þess sem
foreldrar gegna mikilvægu hlutverki í að styðja við og stuðla að góðri menningu innan barnahópsins. Þá er
ómetanlegur stuðningur fyrir foreldra að hafa breitt tengslanet í öðrum foreldrum í nærsamfélaginu, þeir taka
upplýstari ákvarðanir og geta verið öflug rödd umbóta. Þannig geta þeir unnið gegn einelti og fordómum og
stuðlað að auknum skilningi og umburðalyndi milli fjölbreyttra hópa. 

 

Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 15. september 2026
Í gær, mánudaginn 14. september, tóku öll skólastig í Neskaupstað sig saman og tóku þátt í Styrkleikunum. Styrkleikarnir er viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem sýnt er þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning í verki. Mættu nemendur frá Leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands á SÚN völlin. Skiptu sér upp í lið og hlupu þvert á völlinn með kefli fram og til baka í boðhlaupi. Var hlaupið í dágóða stund áður en við tókum höndum saman og mynduðum hjarta á miðjum vellinum. Það var hann Hlynur Sveinsson sem tók myndina af hjartanu og klippti saman myndband af viðburðinum. Þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag í þetta sameiginlega verkefni ásamt öllum þeim sem komu að verkefninu að einhverju leiti. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrkleikana á heimasíðu krabbameinsfélagsins hér. Þeir sem vilja styrkja Styrkleikana er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Styrktarreikningur: Kt. 551001-3340 Rkn. 0166-26-201
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 11. september 2026
Þessi skólavika er búin að vera stútfull af viðburðum. Í vikunni tókum við upp læsir appið til að halda utan um lestur nemenda. Það ættu allir bekkir að vera komnir með bekkjarkóða til að skrá sig inn. Ef ekki þá mælum við með því að fá bekkjarkóða hjá umsjónarkennara barnanna ykkar. Við fórum í göngu á miðvikudaginn. Yngsta stig gekk uppfyrir keilur og inn að minnisvarða, gengu svo neðan við garða til baka. Miðstig gekk upp að Hólatjörnum þar sem nokkrir krakkar skelltu sér í vötnin og áttu góðan tíma saman. Unglingastig gekk svo upp í Bagalsbotna. Veðrið lék við okkur og allir áttu frábæran dag. Krakkarnir voru allir ekkert smá duglegir.
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir • 2. september 2026
Næsta föstudag, 4. september verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein, styrktarfélag standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning. Við í Nesskóla tökum að sjálfsögðu þátt og hvetjum við alla til að mæta í sinni uppáhaldstreyju á föstudaginn.