Febrúarmánuður

Það má svo sannarlega segja að febrúarmánuður hafi verið fullur af fjöri í Nesskóla. Ásamt fjöri þá erum við ákaflega stolt af okkar fólki og börnum.

Fyrir áramót var Fanney Ósk Sveinbjörnsdóttir í 8.SHÁ kosin í Ungmennaráð heimsmarkmiðanna. Meginmarkmið Ungmennaráðsins er að vekja athygli á heimsmarkmiðum og sjálfbærri þróun, bæði meðal jafningja sem og samfélagsins í heild sinni. Hægt er að lesa meira um Ungmennaráðið hérna.Einnig er hægt að fylgjast með Ungmennaráðinu hérna á instagram.

Fanney Osk 

 

Amnesty kíkti í heimsókn til okkar með fræðslu fyrir mið- og unglingastig. Fræðsla hjá Amnesty Internati­onal og mann­rétt­indi. Þar er fjallað um upphaf og starf­semi samtak­anna, mann­rétt­indi og mann­rétt­inda­yf­ir­lýs­ingu Sameinuðu þjóð­anna ásamt því hvernig nemendur geta gripið til aðgerða og tekið þátt í mann­rétt­inda­bar­átt­unni.

Níundi árgangur barnabóka í Nesskóla er kominn út. Í desember vinna nemendur í 10. bekk verkefni í íslensku þar sem þeir skrifa, myndskreyta og hanna barnabók frá grunni. Sex bækur voru skrifaðar í ár og bætast við safnið sem nú telur 45 eintök af skemmtilegum barnabókum sem nemendur mega vera stoltir af. Bækurnar eru geymdar í Nesskóla.  Í byrjun janúar fóru nemendur í 10. bekk í heimsókn á leikskólann Eyrarvelli og lásu fyrir elstu nemendur sem hlustuðu af athygli. 

10.VG barnabækur 

 

Nemendur í 4.HIG voru með sal og sýndu fyrir allt yngsta stig, foreldra og aðstandendur. Sýndu þau myndband sem þau voru búin að taka upp og vinna, ásamt lögum. Sungu þau Gamla Nóa úr áramótaskaupinu og Krumla með Ice Guys.

Nemendaþing voru á unglinga- og miðstigi þar sem umræðuefnin voru einkunnagjöf, próf, breyting á skipulagi á matsal, Naglasúpan, breyting á opnunartíma sundlaugarinnar, starfsemi Atóm og mikilvægi þess að viðhalda góðum lestri. Var þetta í fyrsta skipti sem nemendaþing er haldið í skólanum þar sem nemendur fá rödd og vettvang til að koma sínum hugmyndum á framfæri. Út frá þessari vinnu verður haldið Skólaþing þar sem foreldrum verður boðið að koma og taka þátt í umræðu og lausnum á ákveðnu málefni. Frekari upplýsingar koma þegar nær dregur. Hægt er að sjá myndir frá nemendaþingunum hérna.

Miðstig og unglingastig eru búin að fara í sínar fjallaferðir í Oddsskarð. Þetta árið var ákveðið að stigin færu hvert fyrir sig fjallið í stað þess að allur skólinn færi í einu, eins og venjan hefur verið undanfarin ár. Hefur þetta fyrirkomulag reynst vel og sjáum við fram á að það sé komið til að vera, enda með þessu móti fá allir að njóta okkar fallega útivistarsvæðis. 

Upplestrarkeppni hjá 7. bekkjar var haldin í gær, fimmtudaginn 29.febrúar við hátíðlega athöfn. Stóra upplestrarkeppnin er haldin ár hvert í Fjarðabyggð eins og fleiri stöðum á landinu. Undankeppnir eru haldnar í hverjum skóla fyrir sig þar sem dómnefnd velur fulltrúa til að keppa í upplestri fyrir hönd síns skóla í stóru keppninni sem haldin er í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Fulltrúar Nesskóla verða Júlía Fanney S. Jóhannsdóttir, Blær Ágúst Gunnars og Eva Sól Heimisdóttir varamaður.

Upplestrarkeppnin 

Það sem er framundan hjá okkur er: Góugleði, Kardemommubærinn, árshátíð yngsta stigs og Skólaþing. Ásamt fullt af skemmtilegum hlutum sem verða kynntir í næsta fréttabréfi.

Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 16. júní 2026
Útskrift 10. bekkjar fór fram með stórkostlegri og hátíðlegri athöfn föstudaginn 5. júní síðastliðinn. Við kvöddum þennan flotta árgang 2010 með miklum söknuði í hjarta, enda voru þau búin að vera með okkur í tíu góð og afar viðburðarík ár. Árgangurinn var ávallt einstaklega öflugur í öllu félagslífi skólans, skemmtilega uppátækjasamur og alltaf duglegur að taka þátt í hverjum þeim fjölbreyttu viðburðum sem skólinn bauð upp á í gegnum tíðina. Það var dásamlegt að fylgjast með þeim þroskast og dafna á þessari löngu vegferð. Við óskuðum þeim innilega velfarnaðar og gæfu á öllum þeim nýju og spennandi sviðum sem þau taka sér fyrir hendur í lífinu. Um leið þökkuðum við þessum frábæru ungmennum kærlega fyrir yndisleg og ógleymanleg síðastliðin tíu ár saman í skólanum okkar. Þau skildu eftir sig dýrmætar minningar og við vitum að framtíðin færir þeim frábær tækifæri. Gangi ykkur sem allra best!  p.s. smá útskriftar tiktok sem þau gerðu
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 16. júní 2026
Í lok þessa viðburðaríka skólaárs kvöddum við dásamlegt starfsfólk sem ákvað að breyta til og verða ekki með okkur á næstu misserum – að sinni að minnsta kosti, eins og við viljum gjarnan segja. Til að fagna þeim dýrmætu stundum sem við áttum saman og sýna þakklæti okkar í verki, söfnuðumst við saman í glæsilega og stóra kökuveislu. Boðið var öllu því flotta fólki sem kvaddi okkur á liðnu skólaári. Því miður komust ekki allir í veisluna en við hugsuðum til þeirra allra með mikilli hlýju, söknuði og vinsemd. Við færum okkar bestu þakkir og óskum þeim Katrínu Gróu, Óskari Ágústi, Stellu Rut, Guðrúni Ásgeirs, Viktoríu Gils, Sunnu Björgu, Heiðu Elísabet, Lindu Maríu, Þórði, Jóhönnu, Anítu og Stebbu Freysteins innilega velfarnaðar í öllum þeim spennandi verkefnum sem þau taka sér fyrir hendur. Fyrr í vetur kvöddum við einnig Dæju og Stebbu Huld. Allur þessi frábæri hópur er ávallt hjartanlega velkominn til okkar í spjall og kaffisopa – eða jafnvel aftur í vinnu!
Eftir Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 30. maí 2026
Vorönnin í Nesskóla var einstaklega litrík, lærdómsrík og iðandi af lífi. Þegar horft er til baka yfir liðna mánuði má með sanni segja að starfið hafi verið gríðarlega viðburðaríkt og að nóg hafi verið um að vera á hverjum einasta degi hjá nemendum og starfsfólki. Skólastarfið einkenndist af sköpunargleði, samstarfi, útivist og miklum samfélagsanda þar sem allir lögðu sitt af mörkum til að gera þessa önn ógleymanlega.